Um sauðfjárskoðanir 2017
Höfundur: Eyþór Einarsson
Opnað var fyrir móttöku á pöntunum fyrir sauðfjárskoðanir 15. júní sl. Þegar hefur nokkuð af pöntunum borist enda margir sem þegar vita smaladaga á sínu svæði og eru komnir með sláturdaga fyrir lömbin.
Búist er við að skoðanir hefjist með fyrra fallinu, enda margt sem bendir til þess að lömbin komi vel þroskuð af fjalli eftir hagstætt árferði og þá hvetja jafnframt afurðastöðarnar til þess að lömb komi fyrr en seinna til slátrunar. Hér verður farið stuttlega yfir nokkur atriði tengd sauðfjárdómum haustsins.
Pantanir
Pöntunarfyrirkomulag er með sama hætti og verið hefur síðustu ár. Best er að bændur panti sjálfir í gegnum heimasíðu RML (www.rml.is) en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntunina niður. Helst þyrftu allar pantanir að hafa borist fyrir 20. ágúst, en eftir þann tíma verður farið að raða niður á dagana. Þeir sem panta eftir 20. ágúst munu verða í verri stöðu með að fá skoðun á þeim tíma sem þeir óska eftir. Skipulag innan svæða er jafnframt með svipuðu sniði og verið hefur þótt Vesturlandið, Vestfirðir og hluti af Norðurlandi vestra hafi verið brotin upp með nýjum hætti. Lárus G. Birgisson tekur nú við keflinu af Þorvaldi Þórðarsyni og fer með skipulagið fyrir Vestfirði, þar með talið Barðaströnd og Reykhólasveit. Æskilegt er að allar pantanir berist gegnum heimasíðuna, en ef upp koma breytingar eða annað sem krefst þess að rætt sé við skipuleggjendur á viðkomandi svæðum þá er hér gefið yfirlit yfir hverjir fara með þau mál innan hvers svæðis.
Eftirtaldir aðilar halda utan um skipulag innan svæða:
Vesturland
Oddný K. Guðmundsdóttir
Vestfirðir (þ.m.t. Barðaströnd og Reykhólasveit)
Lárus G. Birgisson
Dalir og Strandir
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Vestur-Húnavatnssýsla
Sigríður Ólafsdóttir
Austur- Húnavatnssýsla
Harpa Birgisdóttir
Skagafjörður og Eyjafjörður
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Suður-Þingeyjarsýsla
María Svanþrúður Jónsdóttir
Norður-Þingeyjarsýsla
Steinunn Anna Halldórsdóttir
Austurland
Guðfinna Harpa Árnadóttir
Suðurland
Fanney Ólöf Lárusdóttir