Þróa fyrsta samsetta fiskileðrið á Íslandi
Nýsköpunarfyrirtækið AMC hlaut nýverið Sprotastyrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís upp á samtals 20 milljónir króna til næstu tveggja ára. Styrkurinn verður notaður til að þróa samsett fiskileður.
„Vinnan hingað til hefur að mestu leyti verið að afla upplýsinga um sútunaraðferðir, lestur á rannsóknum og spá fyrir um aðgang að hráefni í framtíðinni.
Við gerum ráð fyrir nokkrum árum í rannsóknir og tilraunir áður en fyrsta varan verður klár. Hvað hráefni í tilraunir varðar þá hef ég fengið það í litlum skömmtum frá fiskvinnslum.
Mig langar þó að komast í samband við fleiri vinnslur og fá fleiri tegundir af roði, t.d. vantar mig enn þá bleikjuroð,“ segir María Dís Ólafsdóttir, annar eigenda nýsköpunarfyrirtækisins AMC.
María Dís, sem er lífverkfræðingur, og unnusti hennar, Leonard Jóhannsson vélfræðingur, eru með vinnuaðstöðuna heima hjá sér á Akureyri við Spítalaveg 1.
Nanna Lín
Verkefni Maríu og Leonards hlaut Norðursprotann í hugmyndasamkeppni síðastliðið vor og hefur verið stutt af fyrirtækjastyrknum Fræ hjá Rannís.
Verkefnið fékk nýverið endanlegt nafn og ber heitið Nanna Lín. Nanna Lín er leður gert úr afgangsroði og mun lokaafurðin að sögn Maríu verða sterkt og gott leður í metravís.
„Með því að nýta hliðarafurðir til leðurgerðar má til dæmis leysa ýmis gervitextílefni af hólmi og draga með því úr mengun og losun vegna þeirra. Varan er til að mynda ætluð húsgagnaframleiðendum, bólstrurum og öðrum hönnuðum sem vinna með textíl,“ segir María og bætir við:
„Þetta er mjög stórt og spennandi verkefni sem við eigum fyrir höndum. Með því að bjóða upp á stóra fleti af leðri má ná mun betri nýtni í framleiðslu á vörum, samanborið við leður sútað með hefðbundnum hætti.“