Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Byggðamál og hagsmunir landbúnaðarins órjúfanleg heild eftir Guðbjörgu Jónsdóttur
Fréttir 21. júlí 2021

Byggðamál og hagsmunir landbúnaðarins órjúfanleg heild eftir Guðbjörgu Jónsdóttur

Höfundur: Guðbjörg Jónsdóttir

Að mínu mati eru byggðamál og hagsmunir landbúnaðarins það samofnir að um órjúfanlega heild er að ræða. Byggðamál eru eitt stærsta sameiginlega hagsmunamál landbúnaðarins og hefur fengið mikið vægi m.a. á Búnaðarþingum og í daglegu starfi Bændasamtakanna. Þróunin hefur verið sú að ríkisstuðningur við landbúnað hefur færst frá því markmiði að greiða eingöngu niður matvæli til neytenda í það að styðja við aðra þætti eins og varðveislu menningarverðmæta, atvinnu­sköpun og brothættar byggðir. Nauðsynlegt er á hverjum tíma að þróa stuðning við land­búnað í takt við þarfir helstu hagaðila sem eru búvöru­framleiðslan og neytendur. Með stuðningnum er ekki bara átt við það ríkisframlag sem er í formi beingreiðslna til bænda, heldur líka það starfsumhverfi sem að landbúnaður býr við, t.d. í formi tollasamninga, aðgengis að fjármagni, skattlagningar, hvata til nýsköpunar, rannsókna og fagmenntunar. Í árslok 2020 var birt í sam­ráðs­gátt stjórnvalda Grænbók byggðaáætlunar sem ætlað var að meta stöðu byggðamála og vera grundvöllur fyrir nýja stefnu­mótun í byggðamálum til 15 ára. Umsagnarfrestur var gefinn til og með 25. janúar síðastliðinn og skiluðu Bændasamtök Íslands inn umsögn um málið. Í kjölfarið vegna mikilvægi málsins var skipaður starfshópur sem hafði það hlutverk að draga fram tillögur Bændasamtakanna í Hvítbók byggða­áætlunar, tengdum land­búnaði og starfsumgjörð land­bún­aðar­greina. Í starfshópnum sátu auk undirritaðar, Karvel Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar land­bún­aðarins, og Katrín María Andrés­dóttir, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Starfshópurinn skilaði af sér skýrslu í lok apríl til stjórnar, sú skýrsla var síðan lögð til grundvallar við umsögn samtakanna um Hvítbók um byggða­mál.


Starfshópurinn setti sér það markmið í upphafi að hafa það verklag uppi að fá grasrótina með í því að móta áherslurnar. Því var auglýst eftir tillögum meðal félagsmanna, aðildarfélaga og starfsmanna samtakanna. Ánægjulegt var hvað margar tillögur bárust og hvað þær snerust oft um ólíka hagsmuni. Víða mátti samt greina samhljóm og voru innviðir í nærsamfélaginu oftast nefndir. Við úrvinnslu var reynt að setja tillögurnar í samhengi við gildandi áætlanir og stefnumörkun. Tillögurnar voru jafnframt flokkaðar eftir því hvar líklegast væri að þær fengju skoðun og framgang miðað við þá verkaskiptingu sem uppi er milli ríkis, sveitarfélaga, búvörusamninga, byggðaáætlunar o.fl. Starfshópurinn lagði ekki efnislegt mat á tillögurnar sem bárust, að öðru leyti en því að flokka þær eftir því hvar þær ættu helst heima ef þær ættu að koma til framkvæmda. Þannig var engri hugmynd í rauninni hafnað, en kunni tillögur að stangast á verður að ákveða í næstu skrefum hvernig með það skuli unnið.
Jafnframt var lagt til grundvallar í vinnunni þær stefnumarkandi tillögur sem gerðar hafa verið m.a. á Búnaðarþingum og ályktunum á aðalfundi aðildarfélaga Bændasamtakanna.

Núgildandi byggðastefna

Í upphafi vinnunnar var lagt mat á aðgerðaáætlun sem sett var fram af hálfu stjórnvalda sem tengjast landbúnaði eða þeim ábendingum sem bárust. Ýmislegt hefur áunnist í hinum fjölbreytilegustu verkþáttum á undanförnum árum, sem er ánægjulegt. Styrking búsetuskilyrða og innviða í dreifbýli er þó í eðli sínu markþætt málefni og lýkur í raun aldrei að fullu. Í eftirtöldum skilgreindum verkefnum hefur settum markmiðum verkefnistímabilsins verið náð og telst þeim lokið, að því marki sem fyrri áætlun gerði ráð fyrir: Ísland ljóstengt, efling rannsókna og vísindastarfsemi, verslun í strjálbýli, svæðisbundin flutningsjöfnun, nýsköpun í matvælaiðnaði og bújarðir í eigu ríkisins. Fleiri verkefni eru þó enn í vinnslu og er þar á meðal mál sem ítrekað hefur verið rætt á Búnaðarþingum sem er jöfnun á raforkukostnaði. Markmið sem sett var fram er: „Að stuðla að aukinni jöfnun orkukostnaðar í dreifbýli og þéttbýli, bæði hvað varðar dreifingu á raforku og húshitunarkostnað. Unnið verði að því að jafna mun á orkukostnaði, t.d. hvað varðar húshitunarkostnað, sem er mun hærri á þeim stöðum sem ekki búa við möguleika á hitaveitu með jarðvarma.“ Það má geta þess að í frumvarpi til fjárlaga 2021 og fjármálaáætlun 2021–2025 er kveðið á um 730 m.kr. hækkun á framlagi til jöfnunar á dreifikostnaði raforku á árinu 2021. Jafnframt hefur verið unnið að greiningu á regluverki og þörf á þrífösun og varaafli. Önnur mikilvæg mál sem eru enn í vinnslu og sett hafa verið markmið um eru; jöfnun flutningskostnaðar vegna verslunar, uppbygging á innviðum fyrir endurnýjanlega orku á landi og í höfum, skilgreining á opinberri þjónustu og jöfnun aðgengis, þrífösun rafmagns, flutningskerfi orku og aukið orkuöryggi, stuðningur við byggingu smávirkjana, hagstæð lán fyrir landbúnað, fjölbreytt atvinnutækifæri um allt land, fjármagn til nýsköpunar, sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða, stuðningur við brothættar byggðir, varmadæluvæðing á köldum svæðum, náttúruvernd og efling byggða og fagmennska á sviði innviða á náttúruverndarsvæðum. Þegar litið er yfir þessi mikilvægu hagsmunamál dreifbýlisins er augljóst að hagsmunirnir fara saman. Mikilvægt er að gera stefnumörkun til framtíðar og meta þann árangur sem næst með þeim aðgerðum sem ýtt er úr vör.

Landbúnaður og búvörusamningar

Ýmsar af þeim ábendingum sem bárust varða það fyrirkomulag og stuðningsform sem landbúnaður býr nú við. Þannig eru atriði sem beint er tekið á í búvörusamningum og ættu helst að koma til álita við endurskoðun og/eða gerð þeirra.  Margir bændur nefndu tollvernd í þessu samhengi og mikilvægi hennar. Tillögur bárust sem varða félagsauð og þörf fyrir markvissari uppbyggingu hans. Þeim tækifærum og starfsumgjörð þeirra einstaklinga sem búa og starfa í dreifbýli. Talin var þörf fyrir heildarendurskoðun á tryggingamálum bænda og þar með talið lögum um Bjargráðasjóð ásamt afleysingaþjónustu fyrir bændur vegna veikinda og slysa. Aukið vægi skógræktar og stuðningur við úrvinnslu á skógarnytjum. Lagt var til að gera átak í jarðrækt, rannsóknum og þjónustu. Skipun fagráðs í jarðrækt samkvæmt heimild í lögum sem styðji við markvissa og virðisaukandi nýtingu lands og fjölbreytta framleiðslu.


Talið var að sóknarfæri væri fyrir frumkvöðla með land­búnaðartengd verkefni að ná til sín stærri hlut þess fjármagns sem ætlaður er til þróunar- og nýsköpunarstarfs með tilkomu Matvælasjóðs. Umsóknarferlið í sjóðinn mætti vera aðgengilegra og finna þarf stað fyrir þau verkefni sem Framleiðnisjóður styrkti áður en falla ekki beint undir matvælaframleiðslu. Fram kom að framlög búvörusamninga geti nýst með öðrum byggðatengdum stuðningsúrræðum s.s. flutnings­jöfnunarstyrkjum, verkefnum á borð við ,,brothættar byggðir“ o.fl. Þannig mætti t.d. beita fjölbreyttari fjárfestingastuðningi í landbúnaði sem viðbótarstuðningi í byggðaverkefnum svo dæmi sé tekið. Beita þarf úrræðum í gegnum skattkerfið til að styrkja byggða­aðgerðir og búsetuskilyrði í dreifbýli. Þá er jafnframt nauð­synlegt að horfa til samgangna og svæðisbundinna aðstæðna. Þannig hafa vegalengdir ekki úrslitaáhrif á aðgengi að þjónustu, t.d. á svæðum sem búa við lélegar samgöngur eða litlar fjarskiptatengingar, þrátt fyrir að vera í raun tiltölulega stutt frá næsta byggðakjarna.
Í framlögðum tillögum til starfshópsins kom fram vilji að skoða hvort og með hvaða hætti rétt væri að svæðistengja kvóta og greiðslumark, líkt og gert hefur verið með byggðakvóta í sjávarútvegi. Eðlilegt er að vísa þeirri umræðu til gerðar búvörusamninga og til viðkomandi búgreinar þar sem umgjörð um framleiðsluskilyrði er mótuð. Vert er að benda á að svæðistengingu greiðslumarks eða viðbótarstuðning á grundvelli búsetu má auðveldlega útfæra með öðrum byggðatengdum stuðningsaðgerðum. Í inn­sendum tillögum var lagt til að auka sveigjanleika varðandi aðlögunar­samninga í sauðfjárrækt. Slíkt þyrfti að bjóðast oftar en einu sinni á ári og þá þyrfti að vera hægt að velja um fleiri og fínlegri fækkunarþrep.

Hér er rétt aðeins tæpt á þeim fjölmörgu áherslum sem dregnar voru fram. Ekki er verið að fjalla um einstaka liði þeirra eða útfærslu, enda væri það of langt mál. Eins og fram hefur komið er ekki búið að leggja mat á innsendar tillögur í tengslum við stefnu einstakra búgreina. En þær ættu að nýtast áfram í þá vinnu sem fram undan er t.d. við endurskoðun og gerð búvörusamninga. Það voru einnig fjölmög mikilvæg atriði tilgreind sem snúa að skipulagsmálum, landnýtingu og gerð áætlana, innviða og fleiri málaflokkum sem þarf að taka upp á vettvangi ríkis og sveitarfélaga. Ljóst er að félagsauður sam­takanna er mikill og er auðlind sem vert er að horfa til í vinnu sem þessari. Ég vil því að lokum færa sérstakar þakkir til þeirra félagsmanna sem sýndu málinu áhuga og lögðu fram sitt framlag.

Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá BÍ

Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...