Samstaða mikilvæg kúabændum
Aðalfundur Landssambands kúabænda var haldinn um síðustu helgi. Fagþing nautgriparæktarinnar var haldið samhliða fundinum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var farið yfir skýrslu formanns og skýrsluhald í nautgriparækt.
Fundargestir voru sammála um að samstaða kúabænda væri mikilvæg til að standa vörð um hagsmuni stéttarinnar.
Arnar endurkjörinn formaður
Arnar Árnason að Hranastöðum var endurkjörinn formaður Landssambands kúabænda á fundinum. Úr stjórninni gekk Pétur Diðriksson að Helgavatni og Jónatan Magnússon að Hóli, Önundarfirði kom inn í hans stað.
Arnar segir að stóru málin á aðalfundinum hafi verið endurskoðun búvörusamninga, framleiðslustýringarmál og tollamálin.
„Kúabændur voru búnir að kjósa um framleiðslustýringu fyrir fundinn og ákveða að þeir vilji viðhalda kerfinu í greininni, fyrir fundinum lá að útfæra fyrirkomulagið. Helstu breytingar á kerfinu eru þær að miðað við búvörusamninginn var gert ráð fyrir að stýringarkerfið færi út. Nú er aftur á móti búið að ákveða að halda því áfram og því þarf að breyta samningnum í þá veru. Til þess að svo geti orðið þarf að breyta fyrirkomulagi stuðningsbreiðslnanna.
Kúabændur standa saman
Arnar segir að á fundinum hafi komið greinilegur vilji kúabænda til að standa þéttar saman um að verja hagsmuni sína og bændastéttarinnar í heild.
„Ég fór yfir þetta í minni ræðu og fundarmenn tóku undir þetta og að við þyrftum að berja í brestina eins og kom skýrt fram í kvótakosningunni þar sem útkoman var mjög skýr.“
Tollamálin eru risastór málaflokkur fyrir allan landbúnað en ekki bara kúabændur og nautgriparækt, segir Arnar.
„Tollverndin hefur rýrnað að verðgildi og er hætt að halda og tilgangslaust að hafa tolla ef þeir virka ekki. Við viljum því fara í þá vinnu með stjórnvöldum enda höfum við fundið fyrir skilningi úr þeirri átt að undanförnu.“
Samþykkt að hækka félagsgjöld
Á fundinum var samþykkt að hækka félagsgjald til LK um 10%, eða úr 0,30 krónur á lítra í 0,33 krónur á lítra mjólkur sem lagður er í afurðastöð og úr 500 krónur á grip í 550 krónur á grip í UN, KU og K flokkum sem slátrað er í afurðastöð, utan úrkasts.