Örlítil mús öðlast stóran titil
Heimsmetabók Guinness hefur gefið músinni Pat nafnbótina langlífasta mús í umsjá fólks.
Pat fæddist á Náttúrulífsstofnun dýragarðsins í San Diego þann 14. júlí árið 2013 og er því á tíunda ári. Þetta nagdýr er af tegund Kyrrahafspyngjumúsa (e. Pacific pocket mouse) sem um tíma voru taldar aldauðar. Frá þessu er greint á heimasíðu San Diego Zoo Wildlife Alliance.
Músategundin er sú minnsta í Norður-Ameríku. Nafnið draga þær af pokum í kinnunum sem þær nota til að bera fæðu og efni til óðalsgerðar. Pyngjumýs voru áður algengar á Kyrrahafsströndinni milli Los Angeles og Tijuana, en eftir ágang fólks á búsvæði músanna hrundi stofninn árið 1932. Árið 1994 fannst lítill og einangraður stofn í Orange County eftir að mýsnar höfðu verið taldar útdauðar í 20 ár. Síðan hafa fundist tveir aðrir dýrastofnar sem eru einangraðir frá hvor öðrum.
Náttúrufræðistofnunin byrjaði að rækta mýs í haldi árið 2013 og árið 2016 var fyrstu músunum sleppt á ný búsvæði til að fjölga hinum einöngruðu stofnum. Árið 2017 skrásettu vísindamenn tilfelli þar sem pyngjumýs hefðu fjölgað sér án aðkomu fólks á þessum endurvöktu búsvæðum, þar sem þær höfðu áður þurrkast út. Pat fæddist þann 14. júlí á fyrsta ári verkefnisins og var 9 ára og 209 daga þegar hann sló heimsmetið. Á síðasta ári fæddust 117 ungar í 31 goti hjá náttúrufræðistofnuninni, sem er mesti fjöldi frá upphafi. Næsta vor mun stórum hluta þessara einstaklinga verða sleppt lausum til að styðja við uppgang tegundarinnar.
Við athöfn sem haldin var til heiðurs Pat var yfirmanni verkefnisins Debra Shier afhentur skjöldur frá Guinness. Af því tilefni sagði hún að stórar og smáar dýrategundir skiptu miklu máli fyrir jafnvægi vistkerfisins.
Ekki væri rétt að horfa framhjá pyngjumúsum, þrátt fyrir að þær væru ekki stórfenglegar og gætu jafnvel leynst í bakgörðum hjá fólki. Þeirra framlag til vistkerfisins felst meðal annars í því að dreifa plöntufræjum og að lofta um jarðveginn með gangnagreftri.