Verður gaman á snjóbretti í vetur
Óskar Ingimar Ómarsson er 12 ára Hnífsdælingur. Hann á tvö systkini, Hinrik Elí, 8 ára og Ester Elísabetu, 3 ára. Óskar æfir fótbolta og körfubolta af fullum krafti. Uppáhaldsbækurnar hans eru Harry Potter-bækurnar.
Nafn: Óskar Ingimar Ómarsson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Hnífsdal.
Skóli: Grunnskólinn á Ísafirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Ekkert sérstakt.
Uppáhaldshljómsveit: Queen, söngvari Michael jackson.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter.
Fyrsta minning þín? Skreið til mömmu þegar hún sótti mig á leikskólann.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og körfubolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða atvinnumaður í fótbolta eða körfubolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Renna mér niður risabrekku á snjóbretti.
Hvað verður skemmtilegt að gera í vetur? Það verður gaman um jólin og að komast á snjóbretti í vetur.
Næst » Óskar Ingimar skorar á Sigrúnu Ólafsdóttur, frænku sína, að svara næst.