Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Dráttarvél frá Ástralíu
Á faglegum nótum 16. nóvember 2016

Dráttarvél frá Ástralíu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Ástralía er stór heimsálfa og landbúnaður þar hefur verið mikill allt frá landnámi hvíta mannsins.
Á gullöld smárra dráttarvélaframleiðenda voru þar framleiddar ýmsar gerðir traktora sem flestar heyra sögunni til.

Howard

Uppruni Howard dráttarvéla liggur í jarðtætara. Clifford Howard hannaði og hóf framleiðslu á jarðtæturum árið 1920. Græjan þótti bera af öðrum jarðtæturum hvað verð og gæði varðaði og tætararnir seldust eins og heita lummur víða um heim. Í framhaldinu bætti hann um betur og hóf framleiðslu á þriggja og fjögurra hjóla dráttarvélum sem knúðu jarðtætarana. Árið 1930 setti Howard á markað dráttarvél sem fékk heitið DH22, fjögurra strokka og 22 hestöfl. Sala hennar gekk í Ástralíu, Evrópu og Norður-Ameríku og reyndar svo vel að árið 1938 byggði Howard verksmiðju á Bretlandseyjum. Nokkrum árum síðar hóf fyrirtækið framleiðslu á litlum garðtraktorum fyrir Bandaríkjamarkað.

Árið 1985 yfirtók danska Thrige Agro Group fyrirtækið en við upphaf þessarar aldar varð það hluti Kongskilde Industries A/S í Danmörk.

Caldwell Vale

Árið 1907 sóttu áströlsku bræðurnir Felix og Norman Caldwell um einkaleyfi á framleiðslu á fjögurra hjóla dráttarvél sem var með stýringu á öllum hjólum. Eins og nærri má geta fékk traktorinn nafnið Caldwell.

Þremur árum síðar hófu þeir framleiðslu á dráttarvögnum fyrir járnbrautalestir og vörubílum. Árið 1916 lenti fyrirtækið í fjárhagserfiðleikum og var yfirtekið af öðrum vélaframleiðanda sem hét Purcell. Framleiðslunni var þrátt fyrir það hætt skömmu síðar.

Caldwell traktorarnir voru þokkalega kraftmiklir á þeirra tíma mælikvarða, 40 til 80 hestöfl. Þeir voru fjögurra strokka, þrír gírar áfram og einn afturábak. Heildarfjöldi sem fór í framleiðslu var innan við eitt hundrað.

Sunshine

Nafnið Sunshine, eða sólskin, er líklega allra bjartasta nafn sem nokkur dráttarvél hefur hlotnast. Hönnuður dráttarvélarinnar hét Hugh Victor McKay og hafði gríðarleg áhrif á landbúnaðarframleiðslu í Ástralíu. McKay var á táningsaldri þegar hann hannaði sína fyrstu þreskivél. Á árunum 1915 til 1920 setti hann svo á marka fyrstu Sunshine dráttarvélarnar módel A og O. Ekki er vitað hversu margar slíkar voru framleiddar en framleiðslu þeirra var hætt 1926 og lést McKay skömmu síðar.

Eftir dauða Mckay hóf fyrirtækið sem hann stofnaði samstarf við kanadíska framleiðandann Massey Harris. Árið 1930 kom á markað traktor sem kallaðist Sunshine Massey Harris módel 25, 26, og 41HP. Mikill fjöldi slíkra dráttarvéla seldist á sínum tíma í Ástralíu en framleiðslu þeirra var hætt árið 1955 þegar Massey Ferguson tók yfir fyrirtækið sem framleiddi þá.

KL Bulldog

Dráttarvélaheildsalarnir Kelly og Levis voru með umboð fyrir þýsku Lanz Bulldog dráttarvélar og fluttu þær inn til Ástralíu allt þar til seinni heimsstyrjöldin skall á. Eftir lok styrjaldarinnar hófu heildsalarnir framleiðslu á eigin útgáfu af bolabítnum sem fékk heitið KL Bulldog og byggði að stærstum hluta á Lanzinum. Verksmiðja var reist og markið sett hátt en góðu áformin fóru út um þúfur. Innan við þúsund KL Bulldog traktorar litu dagsins ljós og framleiðslu þeirra hætt árið 1945.

Big Lizzie

Sjaldan hefur nokkur dráttarvél borið nafnið Big, eða stór, eins tignarlega og Big Lizzie enda vélin feikilega stór og fyrirferðarmikil. Draumur framleiðandans var að flytja ull langar vegalengdir um Ástralíu. Í fyrstu var hugmyndin að gera það með járnbrautarlest en fljótlega kom í ljós að sauðfjárbú voru dreifð og of dýrt að leggja járnbrautarteina til þeirra.

Árið 1915 var fyrsta og eina útgáfan af Big Lizzie smíðuð. Big Lizzie var eins konar eimvagns­traktor með mikla dráttargetu og ætlað að keyra á milli sauðfjárbúa og sækja ull eins og um járnbrautalest væri að ræða en óháða teinunum. Ferlíkið vó 45 tonn og komst ekki langt vegna þess að það komst ekki yfir næsta stórfljót.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...