Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Á faglegum nótum 17. september 2018
Sláturhús og vinnsla á hjólum
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Nú er ekki lengur nauðsynlegt að keyra sláturgripi um langan veg í sláturhús. Í stað þess er nú hægt að koma með sláturhús á hjólum heim til bóndans eða veiðimannsins úti á mörkinni.
Þetta fyrirbæri er nefnt TriVan Mobile Slaughter Trailer og hugmyndin kviknaði 2002. Þá setti Samvinnufélag bænda í San Juan-sýslu í Bandaríkjunum sér það markmið að slátra sjálft öllum sínum búfénaði. Var útbúið fullkomið sláturhús í gámavagni sem dreginn var af dráttarbíl á milli staða. Var þetta fyrsta færanlega trukkasláturhúsið sem hlaut samþykki landbúnaðarráðuneytis Bandaríkjanna.
Slátrun stórgripa og vinnsla er ekki vandamál.
Með 16 ára reynslu
Frá 2002 hefur TriVan trukkasláturhúsið (Truck Body) verið notað víða og boðið þjónustu sína um alla Norður-Ameríku. Þannig hefur það verið notað við slátrun og vinnslu á hreindýrum í Alaska, nautgripum og kjúklingum í Kanada, við slátrun á buffalóum í Norður-Dakota í Bandaríkjunum og ýmsu öðru.
Sláturhúsið hefur töluverða afkastagetu og hægt er að nota það þótt veðurfar sé slæmt.
Boðið er upp á margs konar staðlaða hönnun sem og hönnun sem byggð er á séróskum hvers og eins. Þannig er hægt að nota færanlegar kjötvinnslur fyrir mikil afköst sem henta staðbundnum aðstæðum og einnig fyrir sjálfbæran búskap.
Til sýnis í Washingtonríki
Framleiðendur bjóða viðskiptavinum að koma og skoða TriVan Truck Body sláturhús og kjötvinnslur á 1.300 fermetra sýningarsvæði hjá Bob Lodder í Ferndale í Washington. Netfangið er blodder@trivan.com.