Yamaha Grizzly 700 SE – Sterklegur vinnuþjarkur frá Arctic Trucks
Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Fyrir stuttu síðan átti ég erindi í Arctic Trucks og hitti þar Björn Ingvar, sölumann á Yamaha fjórhjólum og mótorhjólum.
Hann bauð mér að prófa Yamaha Grizzly 700 fjórhjól sem hann er með í búðinni. Sjaldan hef ég dótinu neitað og var fljótur að þiggja boðið. Með fjórhjólið á kerru fór ég upp á Sandskeið og prófaði fjórhjólið á misgóðum slóðum sem eru við Sandskeið og Bolaöldur.
Skemmtilegt viðbragð í 700cc vélinni
Eftir að hafa prófað hjólið í litlu æfingabrautinni á Bolaöldum til að finna hreyfingarnar í hjólinu var farið í slóðaakstur. Hjólið er glettilega stöðugt og þægilegt að keyra, en mest fannst mér um rafmagnsstýrið sem tekur af öll högg þegar ekið er í ósléttu og á steina miðað við fyrri fjórhjól sem ég hef keyrt. Í lága drifinu með öll hjól læst hefur mér oft fundist fjórhjól sem ég hef verið að keyra vera óstöðug á hraða, en Grizzly 700 lullaði yfir steinana og hindranirnar sem fyrir hjól var lagt eins og ekkert væri. Næst var það að prófa hröðun og snerpu, en á augnabliki var ég kominn upp í 90 km hraða svo ekki vantar aflið í þetta hjól.
Hjólið sem ég prófaði var með spili frá WARN og í hjólinu eru mörg hólf og þar af eitt sem er vatnshelt. 18 lítra bensíntankurinn er nú kominn undir ökumannssætið sem gerir hjólið stöðugra í akstri. Að keyra hjólið á venjulegum malarvegi er margsinnis betra en að taka fjórhjóladrifið af og vera bara í afturhjóladrifinu.
Bögglaberarnir að framan og aftan bera mikið, en uppgefin þyngd að framan er 50 kg að framan og 90 kg að aftan.
Mikið er af varúðarmiðum á hjólinu eins og á öðrum fjórhjólum, þessa miða á að virða og fara eftir því að bæði hér á landi og erlendis hefur slysatíðni á fjórhjólum frekar verið að aukast þegar fækkun er almennt í öðrum slysum.
Verðið á Yamaha Grizzly er frá 2.200.000, en fjórhjólið sem ég prófaði kostar 2.420.000. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni www.yamaha.is.