Kórónasmituðum minkum verður ekki slátrað
Nýlega var þúsundum minka á þremur minkabúum á Norður-Jótlandi í Danmörku slátrað eftir að upp komst um kórónusmit á búunum. Nú hafa dönsk yfirvöld gefið út að hér eftir verði kórónasmituðum minkum ekki slátrað heldur verða starfsmenn búanna skyldaðir til að bera munnbindi við störf.