Fólksfækkun í hreppnum grafalvarlegt mál
Árneshreppur er með fámennustu hreppum landsins og þaðan flytja um tíu manns í haust sem er grafalvarlegt mál. Oddviti hreppsins segir hreppinn fjárhagslega vel stæðan og þar leynist ýmis tækifæri fyrir fólk sem þangað vill flytja. Flest bendir til að kennsla við Finnbogastaðaskóla falli niður í vetur.