Sögulega lítið hráefni í boði
Móttaka fiskimjölsverksmiðja á hráefni dróst saman um 6% á síðasta ári. Magn sem tekið var til vinnslu er það minnsta í marga áratugi. Verksmiðjur Síldarvinnslunnar unnu úr um 32% þess hráefnis sem barst á land á árinu. Fiskimjölsiðnaðurinn skilar um 24 milljörðum á ári í framleiðsluverðmæti.