Matjurtagarður í anda Skúla fógeta
Þrír lokaársnemar í skrúðgarðyrkju við Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Íslands unnu í vor að gerð matjurtagarðs í Viðey í samvinnu við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Garðurinn er í anda matjurtagarðs Skúla Magnússonar landfógeta, sem var frumkvöðull og hvatamaður matjurtaræktunar á Íslandi.