Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Mjólkursamsalan dæmd til að greiða 480.000.000 kr. í sekt
Fréttir 29. maí 2018

Mjólkursamsalan dæmd til að greiða 480.000.000 kr. í sekt

Höfundur: Vilmundur Hansen

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag dæmt Mjólkursamsöluna (MS) til að greiða sekt að fjárhæð 440.000.000 kr. vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á hærra verði en MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) þurftu að greiða.

Við fjárhæð sektar lítur dómurinn til þess að brot MS hafi verið alvarlegt og staðið í langan tíma. Hafi brotið varðað vinnslu mikilvægrar neysluvöru og hafi aðgerðir MS verið fallnar til að skaða samkeppni og neytendur með alvarlegum hætti. Þá var litið til þess að um ítrekað brot var að ræða. Í dóminum er jafnframt fallist á að MS hafi veikt samkeppnisstöðu smærri keppinauta (t.d. Mjólkurbúsins Kú) og haft bein áhrif á vöxt þeirra.

Niðurstaða meirihluta áfrýjunarnefndar samkeppnismála í úrskurði frá 18. nóvember 2016 um að búvörulög hafi heimilað framangreinda háttsemi er því felld úr gildi. Er dómurinn í samræmi við sératkvæði í úrskurði áfrýjunarnefndar sem taldi að staðfesta bæri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 19/2016.

Jafnframt staðfestir dómurinn fyrrgreindan úrskurð áfrýjunarnefndar um að MS hafi brotið upplýsingaskyldu samkeppnislaga með því að halda mikilvægu gagni frá Samkeppniseftirlitinu. Í dóminum segir um þetta: „Með háttalagi sínu torveldaði aðalstefnandi rannsókn málsins og því þurfti að hefja rannsóknina að nýju“. Þykir fjárhæð sektarinnar, 40.000.000. kr., hæfileg.

Til dómsmálsins var stofnað annars vegar af hálfu Samkeppniseftirlitsins, sbr. frétt dags. 26. nóvember 2016, og hins vegar af hálfu MS.

Til grundvallar rannsóknum eftirlitsins lá kvörtun frá Mjólkurbúinu Kú.

Forsaga

Í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan (MS) hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Niðurstaða eftirlitsins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum verulegt samkeppnisforskot gagnvart keppinautum. Með þessu móti hefði geta slíkra aðila til að keppa við MS og tengd félög verið skert með alvarlegum hætti, en á endanum væri það til þess fallið að skaða hagsmuni neytenda og bænda.

Auk þess að leggja sekt á MS vegna m.a. þessa brots beindi Samkeppniseftirlitið fyrirmælum til MS. Tilgangur þeirra var að vinna gegn því að samskonar brot yrðu framin aftur og skapa skilyrði fyrir því að smáir keppinautar MS geti starfað á markaðnum til frambúðar.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 18. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst m.a. að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi og hið sama gildir um framangreind fyrirmæli Samkeppniseftirlitsins. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40.000.000 kr. sekt vegna þess.

Eftir skoðun á forsendum meirihluta áfrýjunarnefndar taldi Samkeppniseftirlitið að því bæri að bera framangreindan úrskurð undir dómstóla og stefndi MS fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að þola ógildingu á framangreindri niðurstöðu meirihluta áfrýjunarnefndar um samspil búvörulaga og samkeppnislaga. Miðaði sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu tæki að fullu til MS. Jafnframt yrði fengin fullnaðarúrlausn um hvort að fyrirtækið skyldi sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað var um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefði metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum.

Með lögum, sem tóku gildi árið 2011, var Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að bera úrskurði áfrýjunarnefndar undir dómstóla, en fyrir gildistöku laganna gátu aðeins einstök fyrirtæki höfðað slík mál. Tilgangur þessarar lagabreytingar var að gera Samkeppniseftirlitinu betur kleift að „vernda þá lögvörðu almannahagsmuni sem felast í virkri samkeppni“. Taldi löggjafinn mikilvægt að Samkeppniseftirlitið gæti borið „stór og mikilvæg mál“ sem varða hagsmuni neytenda undir dómstóla. Með þessu móti væri stuðlað að jafnræði á milli gæslu almannahagsmuna og einkahagsmuna fyrirtækja fyrir dómstólum í samkeppnismálum.

Eins og að framan greindir bar MS úrskurð áfrýjunarnefndar einnig undir dómstóla og krafðist ógildingar á þeim þætti úrskurðarins sem varðaði brot á upplýsingaskyldu.

Illa gekk að selja gærur á erlendum mörkuðum
Fréttir 20. desember 2024

Illa gekk að selja gærur á erlendum mörkuðum

Sala Sláturfélags Suðurlands (SS) á gærum sem féllu til í haust hefur gengið ill...

Heildverslanir og fyrirtæki í landbúnaði handhafar tollkvóta
Fréttir 20. desember 2024

Heildverslanir og fyrirtæki í landbúnaði handhafar tollkvóta

Innnes, Aðföng, Mata, LL42 og Háihólmi eru helstu handhafar tollkvóta á landbúna...

Vænlegt lífgas- og áburðarver
Fréttir 20. desember 2024

Vænlegt lífgas- og áburðarver

Í uppfærðri viðskiptaáætlun Orkídeu fyrir lífgas- og áburðarver í uppsveitum Árn...

Fólki stafar ekki hætta af neyslu fuglakjöts
Fréttir 19. desember 2024

Fólki stafar ekki hætta af neyslu fuglakjöts

Engin ný tilfelli af fuglainflúensu hafa greinst í alifuglum frá því að sýking m...

Breytileikinn T137 fannst á Grímsstöðum
Fréttir 19. desember 2024

Breytileikinn T137 fannst á Grímsstöðum

Á Grímsstöðum 4 í Mývatnssveit hafa nýlega fundist tveir gripir með arfgerðarbre...

Bjart er yfir Miðfirði
Fréttir 19. desember 2024

Bjart er yfir Miðfirði

Bændurnir á bæjunum Bergsstöðum og Urriðaá í Miðfirði fengu heimild til að kaupa...

Reykhólahreppur tekur þátt í Brothættum byggðum
Fréttir 18. desember 2024

Reykhólahreppur tekur þátt í Brothættum byggðum

Nýverið var samningur um byggðaþróunarverkefni Brothættra byggða undirritaður mi...

Mánaðarleg upplýsingagjöf
Fréttir 18. desember 2024

Mánaðarleg upplýsingagjöf

Hagstofa Íslands hyggst frá næstu áramótum birta mánaðarlega upplýsingar um fjöl...