Þúsundir sæspendýra dauð við strendur Perú
Vísindamenn óttast að fuglaflensa sé farin að berast milli ólíkra tegunda spendýra. Ástæða þess er meðal annars sú að fyrir skömmu fundust þúsundir dauðra sæljóna utan við og á ströndum Perú. Dánarorsök sæljónanna var fuglaflensa.
Fyrstu vísbendingar um dauða sæljónanna var þegar veikt dýr fannst á strönd í sunnanverðu landinu. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að sæljónið var aðframkomið af hungri. Sjúkdómsgreining sýndi að dýrið var sýkt af fuglaflensu, H5N1. Síðan þá hafa um 3.500 sæljón fundist dauð vegna flensunnar, eða 3,3% af skráðum stofni dýranna í landinu. Auk þess sem einnig hafa verið að finnast dauðir selir og otrar og einn höfrungur sem einnig reyndist sýktur af flensunni.
Fuglar og strandferðir
Dauð sæljón hafa meðal annars fundist á skerjum og á reki þar sem hræfuglar gæða sér á þeim og er það að auka enn frekar á hættu á útbreiðslu flensunnar. Sömu fuglar leita í úrgang af mannavöldum sem víða er að finna í borgum í Perú, ekki síst í fátækrahverfum.
Fuglaflensa greindist fyrst við strendur Perú í nóvember á síðasta ári í mörgæsum og breiddist síðan út í aðrar tegundir sjófugla sem spóka sig á ströndinni innan um baðstrandargesti.
Banna hanaat
Heilbrigðisyfirvöld í Perú segjast líta á fuglaflensuna sem vaxandi áhyggjuefni í ljósi þess að hún virðist vera að berast milli ólíkra spendýrategunda en ekki bara frá fuglum í spendýr og því ekki ólíklegt að hún geti borist í menn eða milli manna.
Fuglaflensa hefur greinst í fimmtán löndum í Suður-Ameríku en dánartíðni spendýra í Perú er mest af öllum löndum í álfunni. Eitt af því sem gert hefur verið í Perú til að draga úr hættu á útbreiðslu fuglaflensu er að banna hanaat.
Áhyggjur WHO
Samkvæmt frétt á Reuters fyrir skömmu lést ellefu ára gömul stúlka í Kambódíu eftir að hafa smitast af H5N1 afbrigði fuglaflensunnar.
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO segja að afleiðingar þess ef veiran stökkbreytist og verði smitandi með lofti og haldi núverandi dánartíðni geti orðið skelfilegar og að dánartíðnin á heimsvísu gæti legið á milli 5 til 150 milljón manns.