Ætlar að spila með Barcelona
Katla Hjaltey er 7 ára Akureyringur sem elskar fótbolta og dreymir um að spila með Barcelona þegar hún verður stór.
Nafn: Katla Hjaltey Finnbogadóttir.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Lundarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Mér finnst skemmitlegast í stærðfræði og á sparkvellinum.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Ljón.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Mér finnst Friðrik Dór og Páll Óskar góðir.
Uppáhaldskvikmynd: Vaiana.
Fyrsta minning þín? Þegar ég sá sæljón ýta manni út í sundlaug í dýragarði á Spáni.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og gönguskíði.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla verða atvinnukona í fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Það er mjög klikkað að róla í stóru rólunni á skólalóðinni, strákarnir ýta svo fast að maður fer ægilega hratt og hátt.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ég er búinn að fara til Vestmannaeyja og þar var mjög gaman. Svo er ég búinn að fara á fótboltamót og í útilegu.
Næst » Katla Hjaltey skorar á vin sinn Ísak Má Sigursteinsson að svara næst.