Er mikið búinn að vera í sveitunum mínum
Ísak Már er 6 ára fjörkálfur sem finnst gaman að fara til ömmu og afa í Svarfaðardal og til ömmu í Skagafjörð.
Nafn: Ísak Már Sigursteinsson.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Meyja.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Lundarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Stærðfræði og frímínútur.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Kótelettur í raspi.
Uppáhaldshljómsveit: Justin Bieber og Emmsjé Gauti.
Uppáhaldskvikmynd: Algjör Sveppi og leitin að Villa.
Fyrsta minning þín? Þegar ég fór með fjölskyldu minni til Þýskalands.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég æfi handbolta og fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Bakari og fótboltamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að renna í gulu rennibrautinni í sundlauginni á Blönduósi.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já,ég fór hringinn í kringum landið með fjölskyldunni og á fótboltamót. Svo er ég mikið búinn að vera í sveitunum mínum sem eru í Skagafirði og Svarfaðardal.
Næst » Ísak ætlar að skora á vinkonu sína, hana Lilju Karlottu Óskarsdóttur, sem á heima á Öldu í Eyjafjarðarsveit.