Hestasirkuskona framtíðar?
Astrid Nóra er orkumikil og glaðlynd stelpa sem lætur fátt stöðva sig.
Nafn: Astrid Nóra Friðjónsdóttir.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Stykkishólmur.
Skóli: Grunnskólinn í Stykkishólmi.
Skemmtilegast í skólanum: Heimilisfræði og Snillismiðja.
Áhugamál: Hestar, körfubolti og fótbolti.
Tómstundaiðkun: Lúðrasveit þar sem ég spila á kornet. Körfubolti og fótbolti.
Uppáhaldsdýrið: Hestar. Uppáhaldsmatur: Lasagna og
Uppáhaldslag: Hallelujah, sungið af Pentatonix.
Uppáhaldslitur: Bleikur, sægrænn og fjólublár.
Uppáhaldsmynd: Marvelmyndirnar.
Fyrsta minningin: Þegar ég var yngri fannst mér gaman að athuga hvort pósturinn væri kominn heima hjá ömmu og afa. Póstkassinn var við innkeyrsluna og þurfti að labba þangað til að athuga með póstinn.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Fyrsta hestaferðin mín. Þá riðum við afi minn Löngufjörurnar á Snæfellsnesi í stórum hópi.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Það er margt. Til dæmis hestakona, vinna í sirkus og leika í Marvel-mynd.