Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Vegagerð um Hornafjarðarfljót
Mynd / VSÓ ráðgjöf
Lesendarýni 13. desember 2016

Vegagerð um Hornafjarðarfljót

Höfundur: Ragnar Frank Kristjánsson
Íbúar á Suðausturlandi hafa lengi beðið eftir bættum samgöngum yfir Hornafjarðarfljót. Sveitarstjórn Hornafjarðar hefur ákveðið að endurskoða framkvæmdarleyfi fyrir nýjum vegi yfir fljótið vegna nýrra náttúruverndarlaga. Samkvæmt skipulagslögum þá hefur sveitarstjórn skipulagsvaldið og gefur út framkvæmdarleyfi. 
 
Núverandi vegarkafli á hringvegi (1) er 30,3 km langur og á honum eru 3 einbreiðar brýr; yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót og Hoffellsá. Vegstæðið er að mestu leyti á flötu, grónu landi. Árið 1961 var byggð einbreið 255 metra löng brú yfir Hornafjarðarfljót. Fyrir austan fljótið liggur hringvegurinn yfir Hoffellsá, austan við vatnið Þveit, framhjá blómlegum bújörðum, þéttbýlinu í Nesjum og framhjá Hornafjarðarflugvelli að veginum niður að Höfn.  
 
Með nýjum hringvegi (1) yfir Hornafjarðarfljót styttist leiðin um 11-12 km á milli Austurlands og Suðurlands. Á leið 1 um 11 km, á leið 2 um 12 km og á leið 3 um 11,5 km, það munar einungis 500 metrum á leið 1 og 3. Sveitarstjórn hefur lagt áherslu á að stytta samgöngur innan héraðsins og þess vegna hefur rökstuðningur sveitarstjórnar verið að mæla með veglínu 3 þar sem fjarlægðin af Mýrum og Suðursveit er 2,5 km styttri með leiðarvali 3 í stað leiðar 1. Þess má geta að íbúar Mýra og Suðursveitar eru um 100 manns, en yfir 90% íbúa sveitarfélagsins búa austan við fljótið. Öræfin eru innan marka sveitarfélagsins,  en á milli Hafnar og Svínafells í Öræfum eru um 130 km, þannig að það skiptir ekki höfuðmáli hvort leiðin úr Svínafelli verði 119 km eða 116,5 km. 
 
Nauðsynleg hæð vegar gagnvart sjávarflóðum
 
Í skýrslu Helga Jóhannessonar, vatnaverkfræðings Vegagerðarinnar frá 2007, kemur m.a. eftirfarandi fram:
„Hvað sjávarflóð varðar þá hefur Vegagerðin metið að nauðsynleg hæð vegar verði í kóta 3,5 m gagnvart sjávarflóðum en til samanburðar má nefna að núverandi flugvöllur er í kóta 1,84 m þar sem hann er lægstur. Vegfyllingar og vegfláar munu hafa varanleg áhrif á landslag Hornafjarðar og í Skarðsfirði.
Straumar breytast í nágrenni vegfyllinganna. Tillaga Vegagerðarinnar um 40 m langa brú á leið 2 og 50 m langa brú á leið 3 en hún tryggir að mannvirkin hafa nánast engin áhrif á sjávarföll og vatnskipti innan veglínanna. Þrátt fyrir þetta verður að gera ráð fyrir að set safnist fyrir í voginum í skjóli við vegfyllinguna hraðar en ætti sér stað án mannvirkjana. Ástæðan er sú að Hornafjörður er grunnur fjörður og mikið set berst í fjörðinn með Hornafjarðarfljóti sem rótast upp í öldugangi í hvassviðri.
 
Óhjákvæmilegt er að þetta set berst með sjávarfallastraumum í gegnum brúaropið á leiðum 2 og 3 og sest til í skjóli við vegfyllinguna hraðar en ætti sér stað án vegar“. Samkvæmt nýjum upplýsingum um hönnun vegarins þá er gert ráð fyrir að vegurinn verði í kóta 4,5 metrum í stað kóta 3,5 m. 
 
Aukið umferðaröryggi
 
Markmið Vegagerðarinnar er fyrst og fremst að auka umferðaröryggi, draga úr slysahættu og tryggja góðar samgöngur á svæðinu. Að mati Vegagerðarinnar voru þessar þrjár veglínur sem skoðaðar voru álíka varðandi vegtækni og umferðaröryggi. Hönnunarhraði vegarins verður 90 km/klst. Áætlaður kostnaður við leið 3 er 4250 milljónir króna. Vegsvæði vegarins telst vera 60 m breitt og nær 30 metra frá miðlínu vegar til hvorrar hliðar. Með allt að 4,5 metra háum vegi með 1:4 vegfláum þá gæti neðsta burðarlag vegarins verið allt að 40 metra á breidd. Áætluð efnisþörf á leið 1 er 470.000 rúmmetrar og á leið 2 og 3 er áætlað 700.000 rúmmetrar, allt að 50% meiri efnisþörf á leið 1 og 3. Grjótvarnir á leið 3 er margfalt meiri en á leið 1 og er áætlað að taka efni víða í Nesjum sem geta valdið miklum breytingum á landslagi svæðisins. Miklar líkur eru á að efnisþörf í veginn sé vanáætluð, enda fullnaðarhönnun vegarins ekki lokið.   
 
Miklu styttri nýlagning
 
Í skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands frá 2006 um gróður á umræddri veglínu segir:
„Augljós kostur veglínu 1 fram yfir veglínu 2 er hversu miklu styttri nýlagning er á þeirri leið og þar af leiðandi minna rask. Hér vegur þyngst minni skering blautara votlendis á leið 1 þar sem um 25 ha þessara gróðurlenda á leið 1 en 110 ha á leið 2. Út frá þessum rökum er leið 1 tvímælalaust betri kostur“. Umhverfisstofnun tekur undir álit N.Í. í sinni umsögn. Í skýrslu Líffræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2006, fjölrit 75 „Ljóst er að leið 1 mun ekki valda röskun á leirum og fitjum Hornarfjarðar“. Í áliti Skiplagsstofnunar frá 2009 um Umhverfismat vegna framkvæmdarinnar taldi stofnunin að neikvæð umhverfisáhrif leiðar 1 væru minni en leiðar 2 og 3 en lagðist ekki gegn öðrum kostum. 
 
Við leiðarval 1 nýtist lengri kafli á núverandi hringvegi við Hornafjarðarfljót, þar sem hún fylgir að stórum hluta núverandi vegi á Mýrum og í Nesjum. En leið 2 og 3 verður nánast eingöngu um nýlagningu vega að ræða. Í mati á landslagi kemur fram að mikilvægt er að nýr vegur um Hornafjörð lagi sig að landslagi. Það er að mínu mati nánast ómögulegt að leið 2 og 3 geri það, þar sem vegurinn liggur hátt í landi og sker sig í gegnum sjávarfitjar eða er sunnan við þær, en þar mun gæta flóðs og fjöru beggja vegna við fyrirhugaðan veg. 
 
Samkvæmt náttúruverndarlögum njóta bæði sjávarfitjar og leirur sérstakrar verndunar og skal forðast röskun þeirra eins og kostur er. Veglína 2 og 3 munu hafa mikil áhrif á sjávarlón, sjávarfitjar og votlendissvæði við Hrísey, Árnanes, Lækjarnes, Dilksnes og í Skarðsfirði. 
 
Undirritaður fagnar nýlegri ákvörðun sveitarstjórnar Horna­fjarðar um að endurskoða framkvæmdarleyfið fyrir lagningu vega um Hornafjarðarfljót og hvetur sveitarstjórn í framhaldi að skoða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í aðalskipulagi Hornafjarðar frá september 2014 er leiðarvalið samkvæmt leið 3b. Til þess að framkvæmdir geti hafist sumarið 2017 þá þarf að náðst sæmileg sátt á milli sveitarstjórnar og landeigenda í Nesjum, annars er hætta á að löng bið verði á nýjum vegi og brú fyrir Hornafjarðarfljót. Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda á vegagerð yfir Hornafjarðarfljót er brátt tíu ára gamalt, en ef framkvæmdir hefjast ekki á næsta ári þá þarf Skipulagsstofnun að meta hvort endurskoða þurfi matskýrsluna að hluta eða í heild sinni. 
 
Sterkur rökstuðningur fyrir að velja leið 1
 
Þegar velja á milli leiða 1, 2 og 3, þá er sterkur rökstuðningur fyrir að velja leið 1. 
 
A. Hún raskar 85 ha minna af votlendi, fellur betur að landslagi og er þar af leiðandi betri m.t.t. náttúruverndar.  
 
B. Hún er yfir þúsund milljónum ódýrari í framkvæmd, enda minni vegalengd í nýja framkvæmd og þar með efnistöku. Arðsemi framkvæmdarinnar er því mikill.
 
C. Hún styttir hringveginn um 11 km og uppfyllir umferðaröryggi.
 
D. Hún er í meiri sátt við landeigendur í Nesjum.
 
Opinberir fagaðilar mæla með leið 1 vegna þess hún er í meiri sátt við náttúruvernd. Það er því umhugsunarvert fyrir innanríkis- og umhverfisráðuneytið að það sé rökstuðningur sveitarstjórnar sem ráði endanlegu leiðarvali samgangna yfir Hornarfjörð. Sveitarstjórn Hornafjarðar má ekki misnota skipulagsvald sitt þegar; náttúru svæðisins er ógnað, ódýrari vegkostur er til staðar og sambærileg vegstytting er á hringveginum. 
 
Ragnar Frank Kristjánsson
Höfundur er lektor og landslagsarkitekt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Bjó í Skaftafelli, Sveitarfélaginu Hornafirði frá 1998–2007.
Vangaveltur um verðlagsgrundvöll
Lesendarýni 20. desember 2024

Vangaveltur um verðlagsgrundvöll

Í lok nóvember sl. stóðu Bændasamtökin fyrir kynningarfundi fyrir félagsmenn um ...

Hið rétta um raforkuna
Lesendarýni 19. desember 2024

Hið rétta um raforkuna

Við hjá Landsvirkjun höfum bent á það í rúman áratug að nauðsynlegt sé að vinna ...

Verðugur launa sinna
Lesendarýni 16. desember 2024

Verðugur launa sinna

Það hefur löngum þótt sjálfsagður hlutur að veiðimenn á vegum sveitarfélaga séu ...

Garðyrkja og myndlist í hversdeginum
Lesendarýni 13. desember 2024

Garðyrkja og myndlist í hversdeginum

Nú er hreyfing í garðinum sem umlykur Listasafn Árnesinga í Hveragerði og bæjarb...

Þankar um loftslagsvegvísi bænda
Lesendarýni 11. desember 2024

Þankar um loftslagsvegvísi bænda

Í síðasta Bændablaði er fjallað um loftslagsvegvísi bænda og losun frá landbúnað...

Minkaveiðiátak
Lesendarýni 10. desember 2024

Minkaveiðiátak

Þegar ég var ungur maður fyrir hátt í mannsaldri síðan sagði móðir mín, sem var ...

Viðsjár eru uppi um veröld víða
Lesendarýni 3. desember 2024

Viðsjár eru uppi um veröld víða

Á undanförnum árum hefur íslenskur landbúnaður sýnt af sér mikla aðlögunarhæfni....

Nytjaskógar, nytjaplöntur, nytjaland
Lesendarýni 2. desember 2024

Nytjaskógar, nytjaplöntur, nytjaland

Að nytja eitthvað er að hafa gagn af einhverju, mega nota sér til framdráttar á ...