Fimm íslensk náttúruverndarsvæði tilnefnd til evrópskra verndarsvæða
Ísland hefur tilnefnt fimm íslensk náttúruverndarsvæði sem hluta af neti verndarsvæða Bernarsamningsins, um vernd villtra plantna, dýra og búsvæða, sem kallast Emerald Network. Svæðin eru Guðlaugstungur, Vatnajökulsþjóðgarður, Verndarsvæði Mývatns og Laxár, Vestmannsvatn og Þjórsárver.