Æfi sund og spila á gítar
Sigrún Halla Olgeirsdóttir er 12 ára. Hún á einn bróður sem er þremur árum yngri og innan skamms bætist hundur við fjölskylduna.
Sigrún Halla er ljúf, samviskusöm og hörkudugleg stelpa sem hefur áhuga á sundi og tónlist.
Nafn: Sigrún Halla Olgeirsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Bolungarvík.
Skóli: Grunnskóli Bolungarvíkur.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Heimilisfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Billie Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Greatest showman.
Fyrsta minning þín? Þegar ég braut framtennurnar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, æfi sund og er að æfa mig að spila á gítar.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég veit það ekki.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Fara í rússíbana.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór í útilegu.
Næst » Sigrún skorar á Kjartan Stein, sem var með henni í bekk en er fluttur til Akureyrar.