Hekluð tuska
Höfundur: Elín Guðrúnardóttir
Tuskuæðið sem hefur verið í gangi síðustu mánuði hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum heklurum eða prjónurum.
Margir segja að heklaðar/prjónaðar tuskur séu þær allra bestu. Svo verður bara miklu skemmtilegra að þurrka af með fallegri tusku. Ég hef heklað nokkrar tuskur sjálf, mér líkar hversu einfalt það er að skella verkefninu í töskuna og grípa í þegar ég er á kaffihúsi eða í heimsókn.
Garn: Cotton 8 eða Sunkissed, 1 dokka dugar í rúmlega eina tusku.
Heklunál: 3 mm.
Stærð: Tuskurnar mínar eru ca 25 x 25 cm að stærð.
Skammstafanir:
sl. = sleppa, L = lykkja, LL = loftlykkja, FP = fastapinni, ST = stuðull, LL-BIL = loftlykkjubil.
Fitjið upp margfeldið af 3.
(Sem þýðir að fitjað er upp 3, 6, 9, 12 ... lykkjur þar til æskilegri lengd er náð)
1. umf: Heklið 1 FP í 3. LL frá nálinni, 1 LL, 1 ST í sömu lykkju og FP, sl. 2 LL, *[1 FP, 1 LL, 1 ST] í næstu lykkju, sl. 2 LL*, endurtakið frá * að * þar til 3 lykkjur eru eftir, sl. 2 LL, 1 FP í síðustu lykkjuna. Snúið við.
2. umf: Heklið 1 LL, *[1 FP, 1 LL, 1 ST] í LL-BIL fyrri umf*, endurtakið frá * að * út umf, lokið umf með fp í síðustu LL fyrri umf. Snúið við.
Endurtakið 2. umferð þar til stykkið er orðið nógu langt.
Góða skemmtun!
Elín Guðrúnardóttir, Handverkskúnst, www.garn.is .