Blómafjósið vekur mikla athygli og fær verðskuldað hrós
„Árið 2010 fékk ég gróðurhús og það varð heilmikil bylting fyrir mig.
Strax upp úr því fór ég að setja sumarblóm á fjósveggina og í ker við fjósið. Þetta hefur aukist töluvert með árunum en hefur verið svipað síðustu fimm til sex árin. Þannig að sumarið í sumar er svipað og verið hefur.
Ég nota mest hengi-Tóbakshorn (Petuniu) á veggina en blanda ýmsum tegundum saman í kerin. Móðir mín var mjög mikil blóma- og ræktunarkona og við dætur hennar virðumst allar hafa það frá henni. Að rækta sumarblómin veitir mér mjög mikla gleði og ánægju þó vissulega sé þetta talsverð vinna.
Ég er líka með mikið af blómum við íbúðarhúsið og í garðinum,“ segir Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, kúabóndi í Flugumýrarhvammi, aðspurð um öll fallegu blómin við fjósið þeirra Rögnvalds Ólafssonar og dætra þeirra, Þórunnar og Jórunnar.
Kúabú í bland við blómin
Á bænum er kúabú með 32 mjólkandi kýr, kringum 50 fjár, smávegis af hrossum, nokkrar hænur, hundur og köttur, auk myndarlegrar skógræktar.
„Það er að okkar mati gífurlega mikilvægt að ganga vel um og hafa snyrtilegt á bújörðum. Við megum ekki gleyma því að við erum að framleiða matvæli og ásýndin verður bara að vera í lagi.
Við höfum alla tíð lagt áherslu á að ganga vel um og reynt að venja börnin okkar á það líka. Auðvitað hvet ég aðra bændur að hafa snyrtilegt í kringum sig en auðvitað geri ég mér grein fyrir því að það eru ekki allir fyrir blómarækt.
En nokkur blóm í potti við innganginn á útihúsum gera mjög mikið. Og að ganga vel um ættu allir að geta gert. Ráðið frá mér er að það sé gott að venja sig á að ganga alltaf vel um, þá verður þetta ekki eins mikið mál, og ganga vel frá tækjum og vélum,“ segir Sigrún Hrönn enn fremur.
Fallegt og snyrtilegt er um að litast hjá fjölskyldunni í Flugumýrarhvammi þar sem Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, ásamt manni sínum, Rögnvaldi Ólafssyni, og dætrum hafa vakið athygli fyrir blómum skrýtt býli. Þau leggja mikið upp úr því að gengið sé vel um enda ásýnd mikilvæg, ekki síst vegna matvælaframleiðslunnar.