Kötlu-íshellirinn í Mýrdalsjökli eitt af undrum veraldar
Ljósmyndaklúbburinn Blik fór í helgarferð til Víkur í Mýrdal dagana 5.–7. mars síðastliðinn til að sjá og skoða Kötlu-íshellinn í Mýrdalsjökli. Ákveðið var að njóta liðsinnis Southcoast Adventure til fararinnar enda þeir með reglulegar ferðir inn að Kötlujökli.
Fór hópurinn á tveimur vel útbúnum fjallabílum sem út af fyrir sig er hreint ævintýri. Þegar komið var inn eftir dreifðu fararstjórarnir, sem jafnframt voru ökumennirnir, mannbroddum og hjálmum til allra, enda hluti af öryggisbúnaði sem til þarf við heimsóknir í íshella og jökla.
Þægileg aðkoma
Veðrið var einstaklega milt og smá þokusuddi til að byrja með en rofaði til fljótlega eftir að komið var í hellinn og varð eins og best var á kosið. Um 10 mínútna gangur er frá bílastæðinu að hellinum og frekar þægileg ganga fyrir alla sem yfir höfuð geta gengið.
Íshellirinn í Kötlujökli hefur myndast undanfarin ár mest af leysingarvatni og yfirborðsbráðnun í jöklinum, mismikið vatn rennur um hellinn og fer það eftir árstíma hvort sé fært inn í hellinn eða ekki. Þessa helgi var mjög lítið vatn á ferðinni og auðvelt að skoða sig um í hellinum og taka myndir, sem var tilgangur ferðarinnar fyrst og fremst.
Hellisopið er frekar stórt, um 25 til 30 metrar, og dvöldum við þarna á annan tíma við myndatökur eða þar til næsti hópur mætti á svæðið, þá var genginn smáspölur suður fyrir íshellinn að ísdal sem þar hefur myndast undanfarin ár. Þar var okkur bent á hvernig íshellar myndast. þetta svæði er í jaðri gígs eins öflugasta eldfjalls landsins, Kötlu, og er svæðið hálfgerð paradís ljósmyndarans, endalausar ísmyndanir alls staðar í kring hvert sem litið var og myndefni óþrjótandi.
Eitt af undrum veraldar
Íshellirinn í Kötlujökli er breytilegur frá degi til dags, en er alltaf mögnuð sýn, eiginlega eitt af undrum veraldar. Katla, sem gaus síðast árið 1918, og ummerki á svæðinu bera með sér hrikalegar hamfarir sem gosið olli. Leiðsögumennirnir útskýrðu fyrir okkur hvernig landið breyttist í þessum hamförum. Einstaklega skemmtileg og fróðleg ferð, sem vakti löngun hjá okkur öllum um fleiri ferðir til að fræðast enn meir um okkar yndislega og stórbrotna land. Svæðið í kringum Vík var svo skoðað og myndað, meðal annars Hjörleifshöfði, Reynisfjall, Reynisfjaran, Dyrhólaey og víðar.
Stefnan er að fara í fleiri ferðir út á land, bæði dagsferðir og helgarferðir.
Við hvetjum þá sem hafa áhuga á að vera með okkur í Ljósmyndaklúbbnum Blik að hafa samband við klúbbinn á blik.is eða Sólveigu Stolzenwald í síma 863 7273 og fá frekari upplýsingar.