Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Brynja Davíðsdóttir, hamskeri á Selfossi, hefur náð langt í sinni grein enda meira en nóg að gera hjá henni við að stoppa upp fugla. Hún segir að uglur séu mesta áskorunin þegar uppstoppun er annars vegar.
Brynja Davíðsdóttir, hamskeri á Selfossi, hefur náð langt í sinni grein enda meira en nóg að gera hjá henni við að stoppa upp fugla. Hún segir að uglur séu mesta áskorunin þegar uppstoppun er annars vegar.
Mynd / MHH
Líf og starf 17. mars 2023

Mesta áskorunin er að stoppa upp uglur

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Brynja Davíðsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir uppstoppun á ýmsum tegundum dýra. Þá stundar hún líka leirlist og er náttúrufræðingur fram í fingurgóma. Hún gerði sér lítið fyrir á dögunum og hafnaði í þriðja sæti í flokki smáfugla á Evrópumeistaramóti hamskera.

Brynja er uppalin á Laugarvatni og í Reykjavík. Hún lærði upp- stoppun í Bretlandi frá 17–21 árs aldurs og kom þá heim um stund til að klára menntaskóla en þaðan fór hún til Ítalíu í nokkur ár.

„Seinna flutti ég á Hvanneyri til að stunda meistaranám í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands og vann við fuglarannsóknir á þeim tíma og stoppaði upp fugla samhliða því fyrir Náttúrustofu Kópavogs og einstaklinga. Eftir útskrift rataði ég í margvísleg spennandi náttúrutengd störf. Ég var t.d. landvörður á Teigarhorni, framkvæmdastjóri UNESCO jarðvangs, vann verkefni tengd uppbyggingu Ramsarsvæðisins Andakíls í Borgarfirði og í dag vinn ég fyrir Fuglavernd við alþjóðleg samstarfsverkefni samhliða uppstoppun og leirlist, en ég tók diplómanám í leirlist fyrir nokkrum árum,“ segir Brynja.

Hún á tvö uppkomin börn sem tóku þátt í þessu ævintýri með henni en þau stunda nú háskólanám í verkfræði og iðjuþjálfun og eru bæði listræn og náttúruelskendur að sögn Brynju.

„Uppstoppun er faggrein en það eru fremur óhefðbundnar leiðir til að læra hana og oftast bara í gegnum verknám, ef þú ert það heppinn að komast að,“ segir Brynja. Hér er m.a. uppstoppaður köttur á Evrópumeistaramóti hamskera í Salzburg, sem Brynja tók mynd af.

Hamskerinn Brynja

Brynja er hamskeri. En hvað þýðir það á mannamáli?

„Uppstoppun er faggrein en það eru fremur óhefðbundnar leiðir til að læra hana og oftast bara í gegnum verknám, ef þú ert það heppinn að komast að. Á Norðurlöndunum er ákveðinn rammi utan um námið og maður þreytir próf að lokum til að geta starfað sem fagmaður og kallað sig hamskera. Í Bretlandi og víðast í Evrópu taka hamskerar þátt í mótum þar sem keppt er til verðlauna og það er einkum þannig sem menn bæta sig, læra hver af öðrum og skara fram úr í faginu. Ef þú tekur ekki þátt þá veistu ekki hversu góður þú ert í samanburði við hina,“ segir Brynja aðspurð um starfið.

Hún segir að þegar hún byrjaði í uppstoppun var talað um „uppstoppara“ hérlendis. Í Bretlandi, þar sem hún var í verknámi, var þá átak í tveimur þáttum, annars vegar að hækka standardinn á uppstoppuðum dýrum úr illa uppstoppuðu í vel uppstoppað (því var náð fram með fræðslu og keppni á árlegum ráðstefnum) og svo með því að láta fremur niðrandi orð yfir fagið víkja fyrir betra heiti.

„Þannig að þegar ég kem heim úr mínu námi 1996, þá nýbúin að vinna titilinn „Best of Show“ á árlegri ráðstefnu breskra hamskera, þá fannst mér kjörið að vinna undir nafninu „Brynja hamskeri“, enda þá orðin sérhæfð og fær í uppstoppun fugla á breskum mælikvarða,“ segir Brynja.

Skotland

Brynja byrjaði starfsmenntanám sitt í Skotlandi árið 1993, þá 17 ára. Hún varði nokkrum mánuðum í að læra af mismunandi hamskerum í Skotlandi, sem allir höfðu mismunandi sérhæfingu og svo nokkrum mánuðum í Konunglega Edinborgarsafninu og kynntist þar afburða fagmönnum og verklagi þeirra. „Stærsta hluta starfsmenntunarinnar, eða á rúmum tveimur árum, varði ég með Mike Gadd, einum mest verðlaunaða hamskera Bretlands í uppstoppun fugla á þeim tíma.“

Unnið til fjölda verðlauna

Brynja hefur unnið til fjölda verðlauna í alls konar keppnum hamskera. „Þegar kemur að þessu fagi þá er það færni leiðbeinanda og vinnulag þeirra sem skiptir langmestu máli fyrir frammistöðu lærlingsins, svo auðvitað hæfileikar einstaklingsins, æfingin og áframhaldandi tilsögn frá þeim sem eru færari en maður sjálfur. Þess vegna hef ég tekið þátt í Evrópu- og heimsmeistaramótum í gegnum tíðina þar sem maður mátar sig við aðra í faginu og fær innblástur og krítík á sína vinnu.

Ég hef unnið til fjölda verðlauna á þessum mótum og það hefur skipt mig miklu máli að vita að ég sé ekki á villigötum og sé að bæta mig. Ég hef líka sótt námskeið til að bæta tæknina og unnið fyrir færari hamskera og lært af þeim nýjar aðferðir, ber þá helst að nefna margfaldan heimsmeistara í uppstoppun smáfugla, hinn danska Peter Sunesen.“

Breiður hópur lífvera

Brynja er næst spurð hvað sé áhugaverðast og skemmtilegast við starf hamskera. „Það er í fljótu bragði tvennt. Annars vegar það að vinna með svo breiðan hóp lífvera sem þarf að þekkja vel til að geta varðveitt hamina þannig að þeir hafi bæði safn- og fræðslugildi til framtíðar.

Hins vegar er það verkfærnin. Ég er fuglaáhugamaður, en hef líka alltaf haft áhuga á verkfærum og hvers konar verkkunnáttu, nýt þess að horfa á fært fólk vinna í höndunum, þannig að ég drekk í mig allt sem ég sé á mismunandi vinnustofum og hvernig hver iðnaðarmaður/listamaður beitir sinni persónulegu aðferð við hvert atriði til að ná fram mismunandi útkomum,“ segir Brynja og bætir strax við: „Annar skemmtilegur partur er sá að það þarf að fylgjast með atferli fugla úti í náttúrunni og á góðum ljósmyndum eða myndböndum til að geta skilað ákveðnu lífi eða bliki í verkin sem ég vinn.

Svo eru það þessar samkomur eins og Evrópumeistaramót þar sem maður fær innblástur, mátar sig við færni annarra og fær tilsögn til að gera betur. Allt þetta gerir þessa vinnu mjög spennandi og skemmtilega.“ Brynja segist hafa mest gaman af því að stoppa upp fugla, og helst þá mófugla, uglur, smyrla og spörfugla. Hún reynir að komast hjá því að stoppa upp veiðibráð aðra en rjúpur.

Brynja hefur stoppað upp fjölmarga hana í gegnum árin með góðum árangri. Þeir sem vilja hafa samband við hana geta hringt í s. 844-7633 eða gegnum Facebook.

Uppstoppaður auðnutittlingur

Eins og fyrr sagði er Brynja nýkomin heim eftir að hafa tekið þátt í Evrópumeistaramóti hamskera, sem haldið var í þrettánda sinn, nú í Salzburg í Austurríki samhliða glæsilegri veiðisýningu.

„Ég ákvað að taka þátt þetta árið, bæði vegna þess að það eru fimm ár síðan ég tók þátt síðast og ekki síður vegna þess að ég þurfti almennilegt verkefni að stefna að yfir veturinn sem endaði með utanlandsferð í skammdeginu. Ég þarf alveg smá hvatningu til að þrauka veturna hér á skerinu. Ég fór með uppstoppaðan auðnutittling og hann hlaut aðra einkunn, eða 85 stig af 100 mögulegum. Það endaði svo með því að hann var valinn þriðji besti smáfuglinn í flokki fagmanna, sem er besti árangur sem ég hef náð í Evrópumeistarakeppni.

Ég er afar ánægð með þann árangur og þakka nú bara mínum kennurum fyrir kunnáttuna, og kannski mína þrautseigju fyrir að hafa ekki hætt þessu starfi eftir um 30 ár, en ég get gert betur. Þetta var nú ekki besti fugl sem ég hef gert þannig að ég verð að taka þátt aftur sem fyrst og sjá hvernig gengur þá. En ég þakka líka þeim sem gefa mér fugla sem þeir finna dauða, án þeirra væri ég ekki með góð eintök í höndunum til að vinna úr og æfa mig á. Það er meðal annars það sem mig vantar meira af, góðum eintökum sjálfdauðra smáfugla og vaðfugla fyrir næsta mót.“

Brynja náði þeim glæsilega árangri nýlega að verða í þriðja sæti á Evrópumeistaramóti hamskera í Salzburg með auðnutittling, sem hún stoppaði upp. Mynd/Aðsend

Alltaf nóg að gera

Brynja þarf ekki að kvarta undan verkefnaleysi hér heima þegar kemur að uppstoppun. „Slæðingur af fuglum berast alltaf til mín og oftast eru það mjög skemmtileg verkefni. Ég reyni að halda mig við uppstoppun fugla núna, þannig að þeim sem áskotnast falleg og heilleg eintök og vilja láta stoppa upp eða gefa áfram er velkomið að setja sig í samband. Þá er best að fuglinn sé settur beint í lofttæmdan poka og strax í frysti, þannig geymist hann best fyrir uppstoppun seinna meir, jafnvel í nokkur ár.“

Uglur og keldusvín

Brynja segir að verkefni hamskera séu auðvitað mjög mismunandi, en á hún kannski eftir að stoppa upp draumaverkefnið? „Ég hef gert ágætis gripi, man í fljótu bragði eftir sérlega fallegu eintaki af hrafni sem fór til vinar míns í Norðfirði fyrir ekki svo löngu. Svo er alltaf gaman að stoppa upp uglur og keldusvín, þau koma vel út. Svo að sjálfsögðu eru það fuglarnir sem hafa náð langt á mótum, til að mynda hálfstálpaði lóuunginn sem ég fann á þjóðveginum við Djúpavog og fór með á Evrópumeistaramótið 2018 þar sem hann hlaut aðra einkunn.“

Leirbrennsla líka

Brynja er líka í leirbrennslu og hefur mjög gaman af því starfi. „Fyrir nokkrum árum langaði mig að læra að renna leir og í framhaldinu að gera eitthvað öðruvísi en aðrir eru að gera hér á landi. Auðvitað varð það svo fuglatengt hjá mér. Þannig að leirlistin mín er lína af sérmerktum, handrenndum bollum og könnum með fríhendis teiknuðum fuglamyndum.

Leirtauið þolir uppþvottavél og engir tveir bollar eru eins, hvorki í laginu né skreytingunni. Fólk hefur tekið þessu mjög vel, þetta eru eftirsóttar tækifærisgjafir, stundum sérpantaðar. Þeir fást hjá mér á vinnustofunni á Selfossi en einnig í Safnbúð Listasafns Íslands við Reykjavíkurtjörn. Þannig að leirvinnan gengur mjög vel og er frábær viðbót í annars mjög skemmtilegt listaflæði á heimilinu,“ segir Brynja.

Spennandi verkefni fram undan

Brynja situr ekki auðum höndum núna. „Fram undan er uppstoppun fugla fram á vor samhliða leirbrennslu og skreytingum með fuglamyndum til að eiga eitthvert úrval leirmuna fyrir sveitamarkaði og hugsanlega á Hrafnagili á Akureyri seinna í sumar. Í vetur fór ég á leirnámskeið í Englandi til að læra að handmóta fuglastyttur. Ég hlakka til að gefa mér góðan tíma í að nýta mér þá tækni í ró og næði og sjá hvað kemur út úr því.

Að endingu langar mig bara að þakka Bændablaðinu og landsbyggðarfólki fyrir mjög góða samfylgd og samstarf síðustu þrjátíu árin. Ég hef kynnst virkilega góðu fólki sem ég er þakklát fyrir að hafa kynnst og hafa fengið að vinna fyrir. Ég held að það megi alveg segja það að án þess hefði ég ekki haldið úti þessu starfi svona lengi, og ekki náð þessum árangri sem ég náði núna á síðustu vikum. Þetta er allt spurning um samstarf og hvatningu, til að halda áhuga og metnaði til að gera betur. Þannig að, takk fyrir mig,“ segir Brynja stolt og ánægð með vinnuna sína og lífið sjálft.

Smyrill
Líf og starf 20. nóvember 2024

Smyrill

Smyrill er minnsti og jafnframt algengasti ránfuglinn á Íslandi. Hann er nokkuð ...

Róbóti í stuði
Líf og starf 19. nóvember 2024

Róbóti í stuði

Róbótar Internetsins verða betri og betri í bridds. Þeir eru reyndar oft slakir ...

Förum okkur hægar
Líf og starf 18. nóvember 2024

Förum okkur hægar

Mikið hefur verið fjallað um „fast fashion“ eða hraðtísku í fjölmiðlum sl. ár, þ...

Íslandsmót skákfélaga
Líf og starf 15. nóvember 2024

Íslandsmót skákfélaga

Árlega eru haldin tvö mjög fjölmenn skákmót á Íslandi, Íslandsmót skákfélaga og ...

Íslensku hreindýrin í nýrri ljósmyndabók
Líf og starf 13. nóvember 2024

Íslensku hreindýrin í nýrri ljósmyndabók

Út er komin ljósmyndabókin Á slóðum íslenskra hreindýra í fylgd með Skarphéðni G...

Nautaskankar
Líf og starf 13. nóvember 2024

Nautaskankar

Þverskornir nautaskankar, oft ranglega merktir sem Osso Buco, eru ekki oft í hil...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 11. nóvember 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn hefur sjaldan verið óþreyjufyllri en þarf að hægja á sér ef vel á að...

Metnaðarfullt umhverfi
Líf og starf 8. nóvember 2024

Metnaðarfullt umhverfi

Lífið á garðyrkjustöðinni Espiflöt í Reykholti er litríkt. Næstu daga geta lesen...