Drekabollur með svínakjöti og funheitur grænmetisréttur
Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Þegar kalt er í veðri og snjór yfir öllu er tilvalið að láta sig dreyma um hita og sól og elda að austurlenskum hætti.
Svínasíða er hentug í austurlenska matreiðslu þar sem langur eldunartími og fituofið kjötið gera gæfumuninn. Auðvelt er að gera allan undirbúning fyrirfram þegar gerðar eru drekabollur með svínakjöti (gua bao). Nafnið vísar í lögunina á bollunum sem eru eins og uppglenntur drekakjaftur með bragðgóðri fyllingu. Bollurnar smakkast ótrúlega vel upphitaðar daginn eftir.
Fyrir svínasíðu
- 2 msk. salt
- 2 msk. sykur
- 500–1000 g beinlaus svínasíða, skorin í fjóra bita
- 1/2 bolli kjúklingasoð (vatn og kraftur)
Fyrir gufusoðnar bolllur:
- 1 tsk. þurrger
- 1 tsk. sykur
- 1/2 bolli vatn
- 2 bolli hveiti
- 1,5 tsk. lyftiduft
- 1/4 bolli sykur
- 3 tsk. brætt ósaltað smjör
- 1/4 tsk. salt
Aðferð
Sjóðið kartöflur, látið malla í 10 til 15 mínútur, þar til soðnar að fullu. Setjið kartöflur í skál og látið þær kólna.
Blandið saman dijon-sinnepi, majónesi, beikoni og vorlauk. Kryddið til með salti og pipar eftir smekk, skreytið með mandarínum og blaðsellerí (sem gott er að skera með grænmetisflysjara).
Í framleiðslu
- Hoisin sósa
- Sneiddar gúrkur
- Vorlaukur, skorinn fínt
- Kóríander
- Chili sósa eða Sriracha hot sósa ( má sleppa)
Aðferð
Sameinið salt og sykur. Setjið svínakjötið í plastpoka, hellið yfir salti og sykri og setjið í kæli í nokkra tíma eða yfir nótt.
Deigið: Leysið ger og sykur upp í volgu vatni (50°C) og látið það standa í 10 mínútur. Sigtið saman hveiti og lyftiduft. Sett til hliðar. Bætið bræddu smjöri og salti í gerblönduna. Hrærið hveitið saman við til að mynda mjúkt deigið. Hnoðið þar til slétt (5–10 mínútur). Sett í olíusmurða skál og hyljið létt með plastfilmu. Látið hefast á heitum stað þar til deigið tvöfaldast að stærð. Þetta ætti að taka um 1–2 klst.
Svínakjöt: Hitið ofninn í 150°C. Takið svínakjöt úr saltinu og setjið í ofnfast fat. Fitan snýr upp. Hellið kjúklingasoði og 1/2 bolla aukalega af vatni í fatið. Lokið þétt með álpappír og steikið svínakjötið í um 2 1/2 klst., eða þar til það er maukeldað. Fjarlægið álpappír og hitið ofninn í 220°C. Steikt í 20 mínútur til vibótar eða þar til kjöt er gullið og fallegt. Fjarlægið úr ofninum og látið kólna niður í 30 mínútur. Skerið eða rífið niður svínakjöt og kryddið til með safanum úr fatinu. Þetta er hægt að gera daginn áður en bollurnar eru búnar til.
Gufusoðnar bollur: Mótið deigið í litlar kúlur og setjð yfir plastfilmu til að halda fersku. Takið hvert stykki af deigi og rúllið út í flatkökur. Burstið deigið létt með olíu og brjótið saman. Látið hefast í aðrar 20 mínútur (gott að setja á smjörpappír). Bollurnar er hægt að gera fyrirfram líkt og kjötið.
Undirbúið eimbað í wokpönnu eða pott með sigti. Bollurnar ættu að vera í a.m.k. 3 cm frá vatninu. Setjið nokkrar bollur í sigtið og lokið. Gufusjóðið í um 7 mín. eða þar til bollurnar eru loftkenndar og hvítar.
Hitið svínakjöt í pönnu með pönnusafanum. Smyrjið hverja bollu með hoisin-sósu og fyllið með svínasíðum og gúrkum. Gott er að strá muldum salthnetum, kóríander og vorlauk yfir. Berið fram strax.
Grænmetisréttur með kókosmjólk og rauðu karrý
- 2 msk. olía sesamolía
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 500 g blandað grænmeti, skorið í teninga
- 1–2 msk. rautt karrý (allt eftir því hversu sterkt þið þolið)
- 1 paprika, skorin í strimla
- 1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
- 1 dós kókosmjólk
- 1 msk. hnetusmjör
- safi úr 1 lime
- 1/2 búnt kóríander, til skrauts
- 50 g salthnetur
- salt og pipar
Aðferð
Látið olíu á pönnu og steikið hvítlaukinn lítillega við meðalhita. Bætið grænmetinu út á pönnuna og steikið í 3–4 mínútur (tilvalið að nota afgangs grænmeti, blöndu eða taka til í grænmetisskúffunni í ísskápnum) eða þar til það fer að mýkjast. Hellið kókosmjólkinni síðan út á pönnuna ásamt hnetusmjöri og limesafa. Bætið kóríander saman við og kryddið til. Hitið að suðu og látið sjóða í 1 mínútu. Berið fram með hrísgrjónum. Skreytið með kóríander.