Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Þresking korns á Skeiðunum.
Þresking korns á Skeiðunum.
Mynd / ÁL
Fréttir 5. október 2023

Kornuppskera misjöfn

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Bændur eru flestir búnir eða langt komnir með þreskingu á byggi og öðru korni. Víðast hvar var uppskera góð þótt kalt og blautt vor hægði á vexti.

Í Bryðjuholti í Hrunamannahreppi í Árnessýslu má tala um uppskerubrest, en Samúel U. Eyjólfsson segist ekki hafa fengið nema 40 prósent af því sem búast má við í eðlilegu ári. Mesta tjónið varð vegna óveðurs seinni hlutann í september og brotnaði axið af stórum hluta stráanna. Mestur hluti byggsins hafi því hrunið á akurinn. „Maður notar þetta ekki í fóður sem er á jörðinni,“ segir Samúel. Nú séu álftir komnar í stykkin og greinilegt sé að þær hafi nóg að éta.

Meðaluppskeran hjá honum var undir tveimur tonnum af óþurrkuðu korni af hverjum hektara í haust, en í fyrra var uppskeran 4,2 tonn á hektarann, sem var slakt meðaltal. Á góðum árum megi búast við fimm tonnum.

Samúel hefur rætt við sveitunga sína og af þeirra tali að dæma var tjónið í Bryðjuholti nokkuð staðbundið og uppskeran góð á þeim jörðum sem voru í skjóli fyrir rokinu. Uppskerubresturinn hafi í raun verið hrein óheppni og Bryðjuholt hafi lent sérstaklega illa í vindstrengjum. „Þegar vindurinn fer yfir 30 metra í hviðum, þá er það ansi mikið.“

Áhættusamur búskapur

Samúel segir að kornið hafi verið tilbúið áður en óveðrið skall á, en tafir urðu á þreskingu þar sem vél sem pakkar bygginu í svokallaðar pylsur hafi verið í notkun annars staðar. Útbúnaðurinn sé leigður af bændum í Flóa sem gátu ekki séð af honum fyrr, enda voru þeir sjálfir í kappi við tímann. „Ef það hefði verið önnur pylsuvél hérna upp frá, þá hefði verið hægt að taka ansi marga hektara á þeim dögum sem voru þurrir,“ segir Samúel. Hann gagnrýnir að í aðgerðaráætlun stjórnvalda um eflingu kornræktar sé hvergi talað um að fjölga vélum sem þessum.

Hann náði að þreskja einn akur áður en óveðrið skall á, en þar var uppskeran einnig undir meðallagi. Samúel telur ástæðurnar fyrir því vera annars vegar kalt og blautt vor og óveður í byrjun september sem braut hluta kornsins.

Aðspurður um uppskerutryggingar segir Samúel að hann myndi skoða þær ef kjörin væru sanngjörn. Þetta sé áhættusamur búskapur og bændur geti búist við uppskerubresti á nokkurra ára fresti. „Við höfum áður fengið slæm ár, en þetta var kannski mesta rokið sem við höfum lent í,“ segir Samúel og bætir við: „Það eru ekki jól alla daga í þessu.“

Blautt vor í Meðallandi

Á Sandhóli í Meðallandi í Vestur- Skaftafellssýslu er umsvifamikil ræktun á byggi, höfrum og olíurepju. Örn Karlsson, segir byggið hafa skemmst að hluta til vegna vætutíðar í vor og því sé uppskeran rýr. Korninu var sáð í byrjun maí og rigndi nánast látlaust í mánuð þar á eftir.

Þá mynduðust pollar á ökrunum og skemmdist byggið þar. Þroski þess var þó góður og hafði það náð 22 prósent rakastigi þegar það var þreskt núna í september. Uppskeran á höfrum og repju hefst ekki fyrr en í október og reiknar Örn með að byrja þreskingu um það leyti sem Bændablaðið kemur út. Hann segir mjög slæmt ef uppskeran fer undir þrjú tonn á hektarann og í ár var hún ekki nema tvö og hálft tonn. Til samanburðar náðust fimm tonn af byggi af hverjum hektara í fyrra.

Kornbændur hafi fá úrræði þegar þeir lendi í uppskerubresti og segir Örn að það væri mikið framfaramál að koma á fót tryggingakerfi eins og tíðkast erlendis. Starfsbræður hans utan Íslands geti keypt slíka þjónustu af tryggingafélögum, sem endurgreiði þá hluta tjónsins og minnki höggið.

Hafrar líta vel út

Örn segir hafrana líta vel út, þó það segi ekki til hver uppskeran verði. Hafrar séu þolnari en bygg fyrir vætu og því líklegt að rigningatíðin í vor hafi ekki spillt. Veðurþol þeirra á haustin er prýðilegt. Repjan nái jafnframt að standa af sér vind og er því hættuminna að draga þreskingu hennar fram á haustið.

Rigning tefur á Fljótsdalshéraði

Á Breiðavaði við Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði höfðu bændur ekki komist í þreskingu vegna bleytu. Einungis ein þreskivél sé á svæðinu og segir Jón Elvar Gunnarsson að hún hafi ekki náð að koma til sín þá fáu þurru daga sem hafa verið. „Það sem er búið að þreskja var tekið á hlaupum þegar rigningiunni slotaði.“ Væri tíðin betri reiknar hann með að búið væri að þreskja allt korn á sínu svæði.

Hann hefur heyrt frá sveitungum sínum sem segjast nokkuð ánægðir með sína uppskeru. Þó svo að óveður hafi herjað á Austurland í september veit Jón Elvar ekki til þess að korn hafi brotnað. Það hafi ekki verið mjög hvasst, heldur var mikil rigning. „Ég held að það hafi bjargað því að hitinn var réttum megin við núllið. Þetta féll sem vatn, ekki sem slydda eða snjókoma.“

Góð uppskera í Eyjafirði

Á Torfum í Eyjafjarðarsveit hefur gengið vel að þreskja og segir Þórir Níelsson uppskerumagnið mikið og kornið þroskað. „Í byrjun september gerði rok, og þá lagðist dálítið, svo hafa komið tvö veður eftir það,“ segir Þórir.

Uppskeran sé þó ekki búin, því vegna rigningar hefur ekki alltaf verið hægt að keyra tækjum út á akra. „Það er búið að ganga vel á meðan það er hægt að vera við þetta, en við eigum talsvert eftir.“ Þórir hefur ekki tekið nákvæmlega saman hversu mikil uppskeran var á hektarann, en skýtur á að það hafi verið á bilinu sjö til átta tonn af blautu korni. Hann hefur ekki heyrt af neinum bónda í nágrenni við sig sem hefur lent í uppskerubresti, þó einn og einn akur hafi farið illa vegna ágangs fugla.

Þórir sýrir allt sitt korn, en segir að betra væri að hafa aðgang að þurrkstöð. Þær séu til staðar í Eyjafirði, en afköstin þeirra það lítil að færri komist að en vilja. Þurrkstöðvar séu grundvallaratriði ef til standi að efla kornrækt í landinu, eins og stjórnvöld hafa talað um. „Það þarf að gerast eitthvað í alvörunni, ekki bara alltaf að tala og hugsa.“

Frost í jörðu í Skagafirði í vor

Í Keldudal við Hegranes í Skagafirði náðist góð kornuppskera en þar var þreskt upp úr miðjum september. Þórarinn Leifsson bóndi segir að sáning hafi gengið vel, en svo hafi frost verið lengi að fara úr jörðu. „Þetta fór hægt af stað út af kulda og síðan var sólarlítið sumar.“ Í lok ágúst og byrjun september hafi verið hlýindi sem hafi bætt í vöxtinn. Uppskeran sé liðlega fimm tonn á hektara miðað við þurrt bygg og þroskinn í tæpu meðallagi.

Slapp við verstu vindstrengina í Víðidal

Hartmann Bragi Stefánsson, bóndi á Sólbakka í Víðidal, er ánægður með uppskeru ársins í ár. Hann framkvæmdi ekki nákvæmar uppskerumælingar, en það hafi fengist nálægt sex tonnum á hektarann af blautu byggi. Fyrstu akrarnir voru þresktir 19. september og kláraðist allt dagana þar á eftir. Góð uppskera hafi jafnframt fengist af hálmi.

Meðan á þreskingu stóð komu tveir vindasamir dagar sem bældu hluta kornsins, þó ekki þannig að það legðist alveg á jörðina. Hartmann segir þreskivélina hafa náð því með því að slá aðeins neðar og hægar. Sólbakki er staddur í lægð í landslaginu sem veitir skjól fyrir ákveðnum vindáttum, en steinsnar frá hafi orðið meira tjón á ökrum.

Á Jaðri í Borgarfirði var bygguppskeran sæmileg. Eiríkur Blöndal segir að akrarnir hjá sér hafi þó verið nokkuð misjafnir þar sem veðurskilyrðin í vor voru óhagstæð. Jafnframt varð nokkurt foktjón í norðanroki núna í haust. Eiríkur sáði byggi af yrkjunum Smyrli og Hermanni. Það fyrrnefnda segir hann hafa staðið sig betur, á meðan hið síðarnefnda sé mjög uppskerumikið á meðan það þoli illa rokið. Eiríkur þurrkar alla sína uppskeru með kornþurrkara sem nýtir jarðvarma og er staðsettur rétt hjá Jaðri.

Skylt efni: kornrækt | akuryrkja | kornuppskera

Jarðgerð á lagernum
Fréttir 3. maí 2024

Jarðgerð á lagernum

Krambúðin í Mývatnssveit er nú með jarðgerðarvél fyrir lífrænan úrgang í verslun...

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins
Fréttir 2. maí 2024

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins

Opnuð hefur verið íslensk raforkukauphöll, sú fyrsta á Íslandi og með það að mar...

Vöktun íslenskra skóga viðamest
Fréttir 2. maí 2024

Vöktun íslenskra skóga viðamest

Á sviði rannsókna og þróunar hjá Landi og skógi eru fjölmörg verkefni og þeirra ...

Samstarf háskóla skapar tækifæri
Fréttir 2. maí 2024

Samstarf háskóla skapar tækifæri

Jarðræktarmiðstöð LbhÍ er fjármögnuð með skilyrðum um samvinnu við aðrar menntas...

Sjónarmiðin samrýmast ekki
Fréttir 2. maí 2024

Sjónarmiðin samrýmast ekki

Ísteka telur að Samkeppniseftirlitið hefði átt að óska eftir uppfærðum upplýsing...

Norðlenskir bændur verðlaunaðir
Fréttir 1. maí 2024

Norðlenskir bændur verðlaunaðir

Bændur á þremur bæjum voru verðlaunaðir á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar ...

Rekstrarbati hjá Norðlenska Kjarnafæði
Fréttir 1. maí 2024

Rekstrarbati hjá Norðlenska Kjarnafæði

Hagnaður Kjarnafæðis Norð­lenska var 385,5 milljónir króna á síðasta ári fyrir s...

Engir hveitibrauðsdagar
Fréttir 30. apríl 2024

Engir hveitibrauðsdagar

Nýi matvælaráðherrann, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, segir of stutt vera eftir af...