Ætlar að verða dansari
Guðrún Soffía er tólf ár og býr í Kópavogi. Hún á tvo hunda enda eru þeir uppáhaldsdýrin hennar. Guðrún finnst skemmtilegast í skólanum að læra dönsku og leiklist auk þess sem hún æfir jazzballet.
Nafn: Guðrún Soffía Jóhannsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Kópavogur.
Skóli: Snælandsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Leiklist og danska.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Justin Bieber.
Uppáhaldskvikmynd: Twilight, Paper Towns og She’s the Man.
Fyrsta minning þín? Þegar ég sá Týru, hundinn minn. Hún var fjögurra mánaða og ég tveggja og hálfs.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi jazzballet.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Dansari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég bjargaði dverghamstrinum mínum úr munninum á Spotta, hundinum mínum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að vakna snemma til að fara í skólann.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já, ég fór til Danmerkur.