Ætlar í fjöruferðir í sumar
Alexandra Ásta á heima á bænum Stakkhamri á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hennar fyrsta minning er frá því þegar hún fór í sundlaugina í Stykkishólmi.
Nafn: Alexandra Ásta Þrastardóttir.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Stakkhamri, Snæfellsnesi.
Skóli: Grunnskóli Stykkishólms.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Að fara í val.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Köttur.
Uppáhaldsmatur: Brauðstangir með pitsu.
Uppáhaldshljómsveit: Páll Óskar.
Uppáhaldskvikmynd: Tannlaus.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var í rennibrautinni í sundlauginni í Stykkishólmi.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Æfi fótbolta og frjálsar íþróttir.
Ætlar þú að gera eitthvað skemmtilegt í sumar? Fara niður að sjó í fjöruna.
Næst » Alexandra Ásta skorar á systur sína Bjarndísi Erlu að svara næst.