Dansandi blómarós
Sigríði Kristínu er margt til lista lagt, enda upprennandi söng- og leikkona. Hún leggur stund á ballett og kann að meta alíslenskan mat á borð við grjónagraut og lax.
Nafn: Sigríður Kristín.
Aldur: 4 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Reykjavík.
Skemmtilegast í leikskólanum: Að dansa og renna mér.
Áhugamál: Barbie- dúkkurnar mínar og að syngja.
Tómstundaiðkun: Ballett.
Uppáhaldsdýrið: Api, hundur og kisa.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur og lax.
Uppáhaldslag: Hafið bláa hafið.
Uppáhaldslitur: Bleikur og fjólublár.
Uppáhaldsmynd: Frozen.
Fyrsta minningin: Ég var einu sinni með duddu þegar ég var lítið barn.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Að gista í tjaldi og að fara til Frakklands.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Söng- og leikkona.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband sem langar að taka þátt! sigrunpeturs@bondi.is