Gullfiskar og pitsur í uppáhaldi
Eiður Örn er 11 ára og býr á Þykkvabæ 3. Hann hefur gaman af íþróttum og stefnir á frama í fótbolta auk þess sem hann spilar á trommur. Fyrsta minning Eiðs er þegar hann missti sleikjóinn í krókódíla.
Nafn: Eiður Örn Arnórsson.
Aldur: Ég er 11 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Þykkvibær 3.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Gullfiskur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sérstök.
Uppáhaldskvikmynd: Mr. Bean.
Fyrsta minning þín? Þegar ég missti sleikjóinn til krókódílanna.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og ég spila á trommur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Fótboltastjarna.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Hoppa af húsinu á trampolínið.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að fara í tónmennt.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ég fór í bíó, Skemmtigarðinn og margt fleira skemmtilegt.