Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Hér má sjá Instagram-mynd af orrustuflugmanninum Samy Kramer og GPS punktaferil leiðina sem hann flaug og kom fram á korti flightradar24.
Hér má sjá Instagram-mynd af orrustuflugmanninum Samy Kramer og GPS punktaferil leiðina sem hann flaug og kom fram á korti flightradar24.
Líf og starf 28. desember 2020

Jólakveðja og bóluefnasprauta teiknuð í hafflöt og himinhvolf

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Það eru fleiri en skipverjar á björgunarskipinu Gísla Jón frá Ísafirði sem hafa fengið þá hugdettu að teikna skemmtilegar myndir með aðstoð GPS punkta í leiðsögukerfum. Svipaðri hugmynd skaut nefnilega upp í kollinum á 20 ára gömlum þýskum orrustuflugmanni á dögunum.

Jólatré teiknað fyrir Landhelgisgæsluna með GPS ferli björgunarskipsins Gísla Jóns frá Ísafirði á Ísafjarðardjúpi.

Áhöfnin að Gísla Jóns teiknaði jólatré á hafflötinn í Ísafjarðardjúpi og sendu Landhelgisgæslunni með því jólakveðju. Þýski flugmaðurinn Samy Kramer teiknaði aftur á móti  risastóra sprautu á himinhvolfið í 200 kílómetra flugi nálægt Bodensee í Suður-Þýskalandi. Kramer tók á loft á vélinni D-ENIG frá herflugvelli í Friedrichshafen 23. desember og sprautulaga flugleið hans birtist á vefsíðu flightradar24. Gerði hann þetta til að minna fólk á upphaf bólusetningarherferðar COVID-19 í Evrópu.

„Það eru enn tiltölulega margir sem eru á móti bólusetningunni og aðgerð mín getur verið þeim áminning um að hugsa um efnið, til að koma hlutunum í gang“, sagði Kramer við sjónvarpsstöðina Reuters sunnudaginn 27. desember.

„Kannski var það líka svolítið tákn um gleði, vegna þess að flugiðnaðurinn hefur orðið fyrir talsverðum höggum af heimsfaraldrinum“, sagði Kramer. Þýskaland hóf opinberlega COVID-19 bólusetningarherferð sína á sunnudag, þó nokkur ríki innan ESB vildu ekki hlíða fyrirmælum yfirvalda í Brussel og hófu bólusetningar fyrr. Alríkisstjórnin í Þýskalandi ætlar að dreifa meira en 1,3 milljón bóluefnisskömmtum til sveitarfélaga í lok þessa árs og um 700.000 á viku frá janúar.

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun
Líf og starf 25. júlí 2024

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun

Tónlistarkennarinn Marika Alavere hlaut menningarverðlaun Þingeyjarsveitar árið ...

Telur árangurinn á EM viðunandi
Líf og starf 23. júlí 2024

Telur árangurinn á EM viðunandi

Evrópumótinu í bridds lauk í síðustu viku í Herning í Danmörku. Ísland sendi út ...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 22. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Kóngurinn í Skagafirði
Líf og starf 22. júlí 2024

Kóngurinn í Skagafirði

Jón Arnljótsson, sauðfjárbóndi á Ytri- Mælifellsá í Skagafirði, hefur lengi veri...

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar
Líf og starf 18. júlí 2024

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar

Skoða á hefðir og notkun óhefðbundinna lækninga á Íslandi í norrænni rannsókn. A...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 18. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...