Þó að haustlitirnir hafi nú tekið yfir í náttúrunni er ennþá möguleiki að finna nothæf ber til að útbúa eftirrétti eða annað góðgæti. Reyniber eru best þegar þau hafa frosið en líka er hægt að tína og frysta þau (en það þarf að snöggsjóða þau 5 sinnum til að ná remmu úr berjunum, alltaf í fersku vatni, þá er hægt að gera sultu sem er frábær með ostum).
Sumir hafa jafnvel komið sér upp berjabirgðum í frystikistum sem hægt er að grípa til. Rauða paprikan er góð ristuð og fyllt með tómötum, og basil. Fyrir þá sem vilja framlengja sumarið í eldhúsinu er upplagt að snæða gljáðar kjúklingalundir með ferskum kryddum og viðeigandi salati.
Bakaðar paprikur
2 stk. paprika
2 stk. hvítlauksrif
16 stk. þroskaðir kirsuberjatómatar
ólífuolía
12–16 stk. basil
Aðferð
Skerið paprikuna langsum til helminga. Fjarlægið hvíta kjarnann og fræið og setjið í eldfast mót. Afhýðið hvítlauk, skerið fínt og setjið nokkrar sneiðar á hverju papriku ásamt smá salti og matskeið af olíu.
Bakið í 50 mínútur við 200 °C eða þar til paprikan hefur nánast maukast en ennþá full af safa. Bætið basillaufum ofan á eftir eldun. Gott að framreiða með spínatsalati, kartöflusmælki og nægu brauði.
Balsamik-ristað grasker
1 kg grasker
200 g smjör
2 greinar fersk salvía (þurrkuð)
salt
svartur pipar
60 ml balsamik-edik
90 g púðursykur
Aðferð
Afhýðið og skerið graskerið í 1 cm teninga. Brúnið smjörið á pönnu og bætið í salvíu og graskeri. Kryddið með salti og pipar. Bætið við balsamikediki og púðursykri og látið sjóða.
Flytjið í ofnfast fat í 180–200 °C í 30 mínútur eða þangað til mjög mjúkt og kremað viðkomu.
Frábært með kjúklingi eða kalkún eða blandað með grænmeti í gott salat. Uppskriftina er einnig hægt að nota til að útbúa súpu úr graskersmaukinu ásamt vatni.
Sætur og klístraður kjúklingur
12 stk. kjúklingalundir (um 600 g)
2 msk. kornað sinnep
1 msk. hunang
Safi úr 1 sítrónu
3 stk. hvítlauksrif
Aðferð
Hitið ofninn í 220 °C setjið á bakka með álpappír.
Blandið sinnepi og hunangi við safa úr sítrónu. Afhýðið hvítlauk, saxið og bætið við hunangið ásamt smá pipar og salti eftir smekk.
Setjið kjúklingalundirnar í hunangsblönduna og steikið í um 25 mínútur. Snúið lundunum yfir og haldið áfram að elda í 10 mínútur í viðbót. Kjúklingalundirnar munu verða sætar og klístraðar. Gott er að snæða lundirnar með kjarngóðu salati með baunaspírum og agúrku.
Marin karamelluber með rjóma og skyri
Ber klikka ekki með íslenskum rjóma og skyri.
250 g ber að eigin vali
100 g sykur
kalt vatn - 2 msk.
200 ml rjómi (má vera léttþeyttur)
300 g skyr (má vera berja-
eða vanilluskyr)
vanilludropar (eða bragðbætt skyr)
Skolið berin og dragið þau af stilkunum. Setjið á pönnu og bætið í sykri og vatni. Látið sjóða yfir vægum hita, passið að karamella brenni ekki. Lækkið hitann og leyfið berjunum að malla varlega í um fimm mínútur eða svo þar til þau eru farin að springa og lítið magn af safa eftir. Þá er slökkt á hitanum og látið kólna.
Þeytið rjómann mjúklega. Hrærið skyrið varlega og bætið í vanilludropum (eða notið bragðbætt skyr).