Á döfinni ...
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins minntumst við á hina vinsælu sýningu Leikfélags Hveragerðis – söngleikinn vinsæla um Litlu hryllingsbúðina.
Átta leikarar fara með fjölmörg hlutverk í sýningunni en alls koma um 20 manns að uppfærslunni.
Frumsýning er áætluð föstudaginn 6 október, miðasala er á TIX.is og nánari upplýsingar
er að finna á síðu Leikfélags Hveragerðis á Facebook. Sýningar hefjast kl. 19.30 og er sýnt í Leikhúsinu Austurmörk 23.