AIRREX-hitara á pallinn, upplagðir í stór rými og eru fljótir að hitna
Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Þann 1. maí síðastliðin fór ég í árlega hópkeyrslu Snigla til að minna á að það séu mótorhjól í umferðinni. Eins og svo oft áður var hitastigið ekkert til að hrópa húrra fyrir og því gott að koma við í kaffisölutjaldinu hjá Sniglunum.
Á meðan ég beið í röðinni fann ég að mér hitnaði ótrúlega hratt eftir því sem nær kaffikönnunni var komið, það var eins og að sólargeislar væru að skína á andlitið á mér þarna í rigningunni. Ástæðan var lítill ofn í horni sölutjaldsins sem sendi frá sér hitageisla, það var ekkert of heitt fyrir afgreiðsludömurnar sem stóðu alveg við ofninn. Eftir helgina heimsótti ég Jón Hafstein, innflytjanda og söluaðila ofnsins í verslunina JHM Sport, og spurði út í galdur ofnsins og möguleika.
Jón sagðist hafa lánað Sniglunum ofninn sem heitir Arrex AH 300 og er 15Kw, en hefur nokkrum sinnum lánað þennan ofn í samkomutjöld. Ofninn gengur fyrir rafmagni og dísil, eyðir svipað af rafmagni og 80w ljósapera á klukkutíma og brennir 1,2 lítrum af dísil á klukkutíma.
Margar stærðir og gerðir af Airrex-hiturum
Aðspurður um sölu og notkun ofnanna sagði Jón að fyrsti 15 Kw Arirex-ofninn hafi farið í vélaskemmu rétt hjá Raufarhöfn og þann ofn sá fiskverkandi á Raufarhöfn sem nú hitar upp fiskverkunarskemmu með 22Kw ofni og lætur vel af ofninum.
Í boði eru margar mismunandi gerðir af Airrex-hiturum, allt frá 1100 w sem henta vel á sólpalla og lítil rými upp í 22 Kw raf- og dísilknúna sem hita upp stórar skemmur og vöruhús. Kosturinn við ofnana er að ekki þarf að hita upp rýmið löngu áður en maður byrjar að vinna, það er nóg að setja Airrox-ofninn í gang þegar vinna byrjar.
Þegar ofnarnir eru í gangi virka þeir svipað og að sólin sé að skína á mann þar sem að ofnarnir gefa frá sér innfrarauðan geisla sem líkir eftir sólargeisla.
Verðið er mismunandi, en sá litli, 1100 w, kostar 26.900 krónur og dýrasti, 22 Kw, kostar 759.000 krónur.