Hjálmurinn verður að passa og má ekki vera gamall
Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Með aukinni umferð reiðhjóla hefur reiðhjólaslysum á landsvísu fjölgað. Flestir sem hjóla sér til heilsubótar og ánægju nota öryggishjálm. Reiðhjólahjálma skal endurnýja á fimm ára fresti
Ástæða þess að endurnýja skal reiðhjólahjálminn reglulega er að með tímanum harðnar efnið í þeim og þornar. Gamlir hjálmar geta því verið brothættir og gefið falska öryggiskennd. Hjálmurinn verður einnig að passa vel á höfuð þess sem hann notar.
Flestar konur eiga til dæmis að nota hjálma sem merktir eru S sem táknar small. Stærð S í sentímetrum frá enni, fyrir ofan eyru, og aftur á hnakka er 55 til 56. Hjálmar merktir M sem er medium eru aftur á móti 57 til 58 sentímetrar að stærð sem er algeng stærð fyrir meðalkarlmann.
Hjálmar eiga að sitja þétt á höfðinu og sé höfuðið hrist á hjálmurinn að fylgja hreyfingum þess en ekki dingla laus því þá er hann of stór. Þessa mælingu má nota fyrir allar gerðir hjálma hvort sem það eru reið-, vélsleða-, fjórhjóla- eða mótorhjólahjálmar.
Slysum fjölgar samfara auknum hjólreiðum
Varla hefur farið framhjá neinum að vinsældir reiðhjóla, reiðhjólafélaga og reiðhjólakeppna eru miklar. Varla líður sú helgi að ekki sé einhvers staðar verið að keppa á reiðhjólum á vegum úti. Miðað við hversu vegir eru þröngir er með ólíkindum hversu fá slys eru á reiðhjólafólki og árekstrar bíla fátíðir sem rekja má til reiðhjólaumferðar á vegum.
Þegar ég var að alast upp var mér ráðlagt að hjóla á móti umferð í vegkantinum. Í dag er fátítt að maður rekist á reiðhjólafólk á öfugum vegarhelmingi, þó gerist það. Í sumar mætti ég fjölskyldu norður á Ströndum sem kom hjólandi á móti mér í vegkantinum. Fyrir mína parta fannst mér þetta betra, allavega þarna á malarveginum sem ég var á.
Algengt er að sjá hjólafélaga hjóla hlið við hlið og þegar þeir heyra í bíl er farið í einfalda röð. Hins vegar brá þeim reiðhjólamönnunum sem ég kom aftan að í fyrrasumar þegar ég var að prófa rafmagnsbíl og kom hljóðlaust aftan að þeim.
Með auknum fjölda hljóðlausra rafmagnsbíla ættu menn að huga að því hvort ekki væri öruggara að hjóla á öfugum vegarhelmingi á fáförnum vegum.
Hjólahópar vina oft hættulegastir
Fyrir skemmstu fylgdist ég með hundrað kílómetra alþjóðlegum hjólatúr kvenna sem kona mín tók þátt í. Það var að sjá og heyra að konurnar sem tóku þátt skemmtu sér vel. Því miður gáðu þær þó ekki alltaf að sér og voru of margar hlið við hlið á þjóðveginum. Nokkrum sinnum mynduðust hættulegar aðstæður þar sem illa hefði getað farið. Konur fá þrátt fyrir það plús hjá mér fyrir litríkan klæðnað þannig að þær sáust vel og það hægði tímanlega á umferðinni. Það er nefnilega margsannað að áberandi klæðnaður reiðhjólafólks hægir á umferðinni og gefur öðrum meira svigrúm til að bregðast við í tíma.
Höldum endilega áfram að hjóla; hreyfingin er holl og góð.