Veitingastaðurinn Fjárhúsið sérhæfir sig í lambakjöti
Í Húsi Sjávarklasans á Grandagarðinum er nú unnið að uppsetningu á litlum veitingastað sem heitir Fjárhúsið og mun helga sig sölu á fljótelduðum lambakjötsréttum – í svokölluðum street food-stíl. Að auki er ætlunin að bjóða upp á tvíreykt hangikjöt af forystusauðum.