Ætla að verða húsasmiður eða bóndi
Bjarki Snær á kindur og folald, hann er duglegur að sinna dýrunum sínum og hjálpa til við bústörfin.
Bjarki er líka fótboltaáhugamaður og hefur áhuga á flestum íþróttum.
Nafn: Bjarki Snær.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Hemra, Skaftártungu/Klaustur.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir og náttúrufræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundar og hestar.
Uppáhaldsmatur: Pitsa og grillað lambakjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Jói P. og Króli.
Uppáhaldskvikmynd: Engin sérstök en margar skemmtilegar.
Fyrsta minning þín? Að vera í girðingavinnu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Æfi fótbolta og blak.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Húsasmiður eða bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Vera í Bændablaðinu.
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já, ég ætla að borða páskaegg og vera með fjölskyldunni að gera eitthvað skemmtilegt.
Næst » Bjarki skorar á Margréti Blandon að svara næst.