Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Færeysk stjörnupeysa
Hannyrðahornið 11. nóvember 2015

Færeysk stjörnupeysa

Höfundur: Guðrún María
Þetta peysumunstur hefur verið mjög vinsælt í Færeyjum undanfarin ár. Ég prjónaði þessa opnu peysu á Maíu, ömmugullið mitt, rétt eftir að hún fæddist. Létt og hlý peysa úr Navia Duo sem nú fæst hjá okkur í Handverkskúnst. 
 
 
 
 
Stærð:  6 (12) 18 mánaða
Garn: Navia Duo
- Litur 1: 2 (2) 3 dokkur
- Litur 2: 1 dokka í allar stærðir
 
Prjónar:
- Hringprjónn 60 sm, nr 3 og 4
- Sokkaprjónar nr 3
 
Prjónfesta: 23 lykkjur slétt prjón á prjóna nr 4 = 10 sm
7 tölur
 
Aðferð:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Bolur, síðan ermar sem sameinaðar eru bol og berustykki prjónað með laskaúrtöku. Boðungar á peysu eru prjónaðir síðan og saumaðir við framstykkin. 
 
Bolur:
Fitjið upp 127 (135) 145 lykkjur á hringprjón nr 3 með lit 1. Prjónið stroff; 1 slétt, 1 brugðin, 8 umferðir. Setjið nú fyrstu 8 lykkjurnar og síðustu 8 á þráð/nælu = 111 (119) 129 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 4 og prjónið slétt prjón og munstur þannig:
 
6 mánaða: prjónið: 8 umferðir með lit 1, munstur, 10 umferðir með lit 1, 9 umferðir munstur. Prjónið nú 21 lykkju í munstri, setjið 11 lykkjur á þráð/nælu, 47 lykkjur munstur, setjið 11 lykkjur á þráð/nælu, prjónið 21 lykkju í munstri. Geymið stykkið og prjónið ermar.
12 mánaða: prjónið: 8 umferðir með lit 1 (fækkið um 1 lykkju í fyrstu umferð = 118 lykkjur), munstur, 10 umferðir með lit 1, munstur, 3 umferðir með lit 1. Prjónið nú 23 lykkjur slétt, setjið 12 lykkjur á þráð/nælu, 48 lykkjur slétt, setjið 12 lykkjur á þráð/nælu, prjónið 23 lykkjur slétt. Geymið stykkið og prjónið ermar. 
 
18 mánaða: prjónið: 8 umferðir með lit 1, munstur, 10 umferðir með lit 1, munstur, 9 umferðir með lit 1. Prjónið nú 25 lykkjur slétt, setjið 11 lykkjur á þráð/nælu, 57 lykkjur slétt, setjið 11 lykkjur á þráð/nælu, prjónið 25 lykkjur slétt. Geymið stykkið og prjónið ermar. 
 
Ermar:
Fitjið upp 28 (30) 32 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með lit 1. Tengið í hring og prjónið stroff; 1 slétt, 1 brugðin, 8 umferðir. Skiptið yfir á prjóna nr 4 og aukið út í fyrstu umferð um 8 (12) 10 lykkjur jafnt yfir umferðina = 36 (42) 42 lykkjur. Prjónið munstur eins og á bol. ATH: fyrsta lykkja í umferð er ekki prjónuð með í munstri. Aukið er út sitt hvoru megin við hana og nýju lykkjurnar ganga inn í munstrið. Aukið út um 2 lykkjur í 5. hverri umferð 7 (7) 9 sinnum = 50 (56) 60 lykkjur. Prjónið áfram eins og á bol og endið á sama stað, setjið 11 (12) 11 lykkjur á þráð/nælu undir miðri ermi.
 
Berustykki:
Sameinið bol og ermar á hringprjón = 167 (182) 205 lykkjur, setjið prjónamerki við samskeyti bols og erma = 4 prjónamerki.  Prjónið áfram þar sem frá var horfið þ.e. munstur eða einlitt eftir því hvar var hætt í hverri stærð. Prjónið 4 umferðir og byrjið nú á laskaúrtöku sitt hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: *prjónið þar til 2 lykkjur eru að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúið slétt saman. Færið prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman* Endurtakið frá *-* við öll samskeyti. Takið þannig úr í annarri hverri umferð 12 (14) 16 sinnum = 66 (70) 77 lykkjur.
 
Hálsmál:
Skiptið yfir á prjóna nr 3 og prjónið stroff; 1 slétt, 1 brugðin, 8 umferðir. Fellið laust af.
 
Listar að framan:
Setjið 7 hnappagöt á hægri lista fyrir stelpur en á vinstri lista fyrir stráka.
Hnappagat: Prjónið frá réttu 4 lykkjur stroff, 2 lykkjur slétt saman, sláið bandið um prjóinn, 3 lykkjur stroff.
 
Prjónið listann með lit 1 en bætið við einni lykkju í lok fyrstu umferðar = 9 lykkjur; 1 slétt, 1 brugðin, fram og til baka þar til hann er um það bil 1,5 sm styttri en framstykkið (hafið hann aðeins strekktann). Munið eftir að gera hnappagöt.
 
Fellið af allar lykkjur.Saumið listann við framstykkið. Festið tölur í peysuna. Þvoið peysuna í höndunum eða á ullarprógrammi í þvottavél með Navia ullarsápu. Leggið til þerris.
 
Prjónakveðja, 
Guðrún María
www.garn.is
Hölluklútur – úr íslenskri ull
Hannyrðahornið 9. júlí 2024

Hölluklútur – úr íslenskri ull

Hölluklútar af ýmsu tagi.

Grifflur fyrir frjálsa fingur
Hannyrðahornið 11. júní 2024

Grifflur fyrir frjálsa fingur

Stærðir: S M L Efni: 60 gr tvöfaldur lopi frá Þingborg eða Ístex. Sokkaprjónar 3...

Billy Jean
Hannyrðahornið 28. maí 2024

Billy Jean

Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað í hring í stroffprjóni, neða...

Önnu-peysa
Hannyrðahornið 15. maí 2024

Önnu-peysa

Stærðir: S M L XL Yfirvídd: 94 100 111 12

Lillemor bylgjuteppi
Hannyrðahornið 23. apríl 2024

Lillemor bylgjuteppi

Uppskriftina með fleiri myndum og nánari leiðbeiningum er að finna á www.GARN.is...

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL