Koltvísýringur er lífsnauðsynlegur plöntum og mikilvægt hráefni í ylræktarframleiðslu. Notkun hans stuðlar að heilbrigðri starfsemi plantna sem skilar sér í meiri og betri afurðum.
Koltvísýringur er lífsnauðsynlegur plöntum og mikilvægt hráefni í ylræktarframleiðslu. Notkun hans stuðlar að heilbrigðri starfsemi plantna sem skilar sér í meiri og betri afurðum.
Mynd / Hlynur Gauti
Fréttaskýring 16. ágúst 2024

Óeðlileg einokun á koltvísýringsmarkaði

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Skortur á koltvísýringi og óöryggi við afhendingu hans hefur hamlandi áhrif á ylræktarframleiðslu á Íslandi. Bændur segja að fyrirtækið Linde Gas notfæri sér markaðsráðandi stöðu sína á vafasaman hátt. Einn garðyrkjubóndi fékk nóg og tók málið í sínar eigin hendur.

Koltvísýringur, CO2, er kolefnissameind samsett úr einni kolefnisfrumeind og tveimur súrefnisfrumeindum. Á meðan menn lifa af því að anda að sér súrefni, þá lifa plöntur á því að anda að sér koltvísýringi. Með ljóstillífun taka plönturnar koltvísýringinn úr andrúmsloftinu, kljúfa sameindirnar og nota kolefnið sem næringu og skila súrefni út í andrúmsloftið. Koltvísýringur er því lífsnauðsynlegur plöntunum. Hann er til staðar í andrúmsloftinu í ákveðnum styrkleika. Inni í gróðurhúsum, þar sem þéttleiki plantna er oft mikill, er hægt að auka styrkleika koltvísýrings með því að dæla honum inn í framleiðsluhúsin í ákveðnu magni. Með því eykst vöxtur og gæði plantnanna og starfsemi þeirra verður hraustari sem skilar sér í meiri og betri afurðum. Koltvísýringur er því mikilvægt hráefni í ylræktarframleiðslu. Oft er talað um kolsýru í þessu samhengi, eða fljótandi CO2, en til samræmingar verður hér talað um koltvísýring.

Framleiðslubrestur vegna skeytingarleysis

Aðeins eitt fyrirtæki á landinu, Linde Gas, útvegar koltvísýring hér á landi. Á undanförnum árum hefur megn óánægja aukist meðal viðskiptavina þeirra með viðskiptahætti fyrirtækisins. Lýsir það sér meðal annars í skeytingarleysi gagnvart garðyrkjuframleiðslunni, þannig fá bændur ekki það magn af koltvísýringi sem þeir hafa skuldbundið sig til að kaupa og afhending hefur verið gloppótt.

„Það hafa komið tímabil þar sem við fáum annaðhvort tilkynningu um að ekki sé hægt að afhenda vöruna, eða þá að það sé frestun á afhendingu og við því beðin um að skrúfa niður í gróðurhúsunum og spara á meðan,“ segir Axel Sæland, formaður búgreinadeildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands.

Bændur hafi lent í því að vera koltvísýringslausir svo vikum skiptir sem hefur bein áhrif á framleiðslumagn og gæði afurðanna. Þetta kemur aftur niður á rekstraröryggi garðyrkjustöðvanna.

Axel segir að Linde Gas hafi sett fyrir sig skort á koltvísýringi. „Þeir vitna yfirleitt í þá borholu sem þeir hafa verið að vinna úr hér á landi,“ segir Axel og vísar þar í Hæðarenda í Grímsnesi. „Þeir segja að borholan sé ekki að sinna því sem þeir vonuðust til. Þá hefði maður haldið að innflutningur ætti að koma í staðinn, þótt það sé bagalegt að flytja inn til landsins koltvísýring. En þetta er nauðsynleg vara og maður hefði ætlast til þess að fyrirtækið myndi sinna sínu hlutverki, því það hefur augljóslega leiðirnar til að tryggja sér koltvísýring.“

Axel bendir á að fyrirtæki sem séu með einokun á markaði lúti ákveðnum skuldbindingum gagnvart markaði.

„Markaðurinn er í dag háður þessu fyrirtæki á Íslandi. Þeir þurfa að vanda til verks og það á að vera viðskiptavinum til góða að geta leitað til trausts aðila.“

Viðskiptalegur aulaháttur

„Við erum að keyra 800–900 ppm í húsunum. Í andrúmsloftinu er styrkurinn um 430 ppm,“ útskýrir Hafberg Þórisson, forstjóri garðyrkjustöðvarinnar Lambhaga sem framleiðir salat. Þegar framleiðsluhúsin hafi engan auka koltvísýring séu plönturnar fljótar að nýta það sem til er í andrúmsloftinu og styrkur koltvísýrings fellur. „Og þegar ppm-ið er komið niður í tvö hundruð, eins og oft hefur átt sér stað, þá er enginn vöxtur í plöntunum.“

Hafberg segir að sér virðist sem forsvarsmenn Linde Gas átti sig ekki á þeim vanda sem upp komi í framleiðslunni þegar stöðvar verða koltvísýringslausar. Hann hafi ekki fengið það magn sem hann hafi samið um og hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa.

„Við notum nær tíu tonn á mánuði. Í tönkunum eru sjálfvirkir mælar sem gefa boð í stöðvarhúsið til þeirra og þá eiga þeir að koma og afgreiða mig.“ Það hafi hins vegar ekki gengið eftir og segir Hafberg þetta afskiptaleysi valda því að hann vilji geta leitað til annarra aðila sem afhenda koltvísýring á öruggari hátt.

„Ég ætla mönnum ekki að þeir séu illir út í okkur. Þetta er bara viðskiptalegur aulaháttur sem kemur illa niður á okkur.“

Stórfyrirtæki í einokunarstöðu

Árið 1983 var borað fyrir heitu vatni að Hæðarenda í Grímsnesi. Í vatninu sem fannst kom gas sem reyndist vera nær hrein kolsýra. Sett var upp vélasamstæða og fyrirtækið Kolsýruvinnslan var stofnað árið 1988 sem seldi garðyrkjubændum og drykkjarvöruframleiðendum koltvísýring.

ÍSAGA er fyrirtæki sem stofnað var árið 1919 í samstarfi við sænska fyrirtækið AGA. Fyrirtækið starfaði á markaði fyrir innflutning, framleiðslu, sölu, leigu og dreifingu á gashylkjum, gasi og öðrum lofttegundum.

Árið 1998 keypti ÍSAGA verksmiðjuna á Hæðarenda og lagði um leið niður efnaverksmiðjuna Eim sem fyrirtækið hafði keypt árið 1994. Eimur framleiddi koltvísýring í Þorlákshöfn. Var þá öll framleiðsla og sala á koltvísýringi komið undir eitt fyrirtæki.

Árið 1999 keypti þýska efnafyrirtækið Linde fyrirtækið AGA og eignaðist þar með ÍSAGA. Árið 2012 tók ÍSAGA svo yfir viðskiptasamninga og lausafé fyrirtækisins Strandmöllen ehf. sem seldi hér lofttegundir fyrir málmiðnað og heilbrigðisgeirann.

Við þá yfirtöku myndaðist einokunarstaða á markaði hér á landi, að því er fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 15/2013.

Árið 2020 var nafni fyrirtækisins ÍSAGA breytt í Linde Gas. Linde hafði runnið saman við bandaríska gasfyrirtækið Praxair árið 2018. Samsteypan Linde plc er því langstærsta gasfyrirtæki í heimi og raðar sér árlega á lista stærstu fyrirtækja jarðar. Á vef félagsins segir að starfsemi fyrirtækisins sé í yfir hundrað löndum og hjá því starfi yfir áttatíu þúsund manns.

Höfuðstöðvar Linde Gas á Íslandi eru við Búðarhellu í Hafnarfirði en skráðir eigendur fyrirtækisins eru sænskir; þeir Jonas Anders Nyström, Robin Lars Olofsson og Klas Fredrik Stylander. John Olander er forstjóri Linde Gas.

Milljarða arðgreiðslur

Linde Gas á lóð á jörð Hæðarenda þar sem koltvísýringsverksmiðja fyrirtækisins er. Fyrirtækið vinnur koltvísýring úr borholu í jörðinni og hefur framleiðsla þar verið á bilinu um 3.800–4.900 tonn á ári á sl. tíu árum. Á sama tíma hefur innflutningur verið á bilinu um 1.000–1.800 tonn á ári, en á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 voru flutt inn tæplega 1.700 tonn samkvæmt tölum Hagstofunnar. Innflutningur á koltvísýringi er því að aukast.

Í fréttum Ríkissjónvarpsins árið 2017 sagði Þorlákur Kristjánsson, þáverandi verksmiðjustjóri ÍSAGA, að á Hæðarenda væru framleidd um 4.000 tonn af koltvísýringi á ári. Landsþörfin væri þá um 6.000 tonn og það sem upp á vantaði væri því flutt inn með tilheyrandi kostnaði.

Linde Gas er stöndugt fyrirtæki. Hagnaður fyrirtækisins var rúmlega milljarður króna árið 2022 og reyndist það besta afkoma félagsins. Rekstrartekjur félagsins voru tæpir 3,5 milljarðar króna en kostnaðarverð seldra vara um 840 milljónir króna. Framlegðin er því afar góð. Rekstrarhagnaður ársins 2022 fyrir afskriftir (EBITA) nam rúmlega 1,5 milljörðum króna. Eignir félagsins voru bókfærðar á 5,2 milljarða króna árið 2022 og greiddi félagið eigendum sínum milljarð króna í arð fyrir rekstrarárið.

Í reynd hefur félagið þrisvar sinnum á síðustu fimm árum greitt eigendum sínum milljarð króna í arð. Ársreikningur fyrir rekstrarárið 2023 hefur ekki verið birtur.

Forsvarsmönnum Linde Gas á Íslandi gafst kostur á að svara spurningum Bændablaðsins um rekstur og starfshætti fyrirtækisins og bregðast við gagnrýni bænda á skorti og afhendingu koltvísýrings, en kusu að tjá sig ekki þegar eftir því var leitað.

Grænmetisframleiðsla minnkar vegna koltvísýringsskorts

Viðskiptasamband Linde Gas við garðyrkjubændur felst að sögn þeirra í því að bændur gera samning við fyrirtækið um að leigja af þeim tanka fyrir ákveðið mánaðargjald og skuldbinda sig um leið að kaupa af þeim áætlað magn af koltvísýringi. Fyrirtækið á að sjá um að fylla koltvísýring á tankana þegar þeir tæmast. „Bændur þurfa ákveðið afhendingaröryggi svo framleiðslan detti ekki niður. Fyrirtækið vill líka öryggi á notkun tanka sem þeir útvega. Bændur skuldbinda sig fyrirtækinu alveg með því að leigja tank frá þeim, því þeir mega eingöngu kaupa koltvísýring frá Linde Gas,“ segir Axel Sæland.

Hins vegar hafi margir bændur orðið fyrir framleiðslubresti vegna þess að fyrirtækið afhendir ekki koltvísýring á réttum tíma. „Það er bagalegt fyrir bændur að vera að leigja tank sem ekki er fyllt á. Það virðist vera undir hverjum bónda fyrir sig komið, eins og staðan er í dag, að fá leigu á tanki niðurfellda ef tankur er tómur eða ef þeir geta ekki afhent koltvísýring.“

Dæmi séu um að úr sér gengnir tankar hafi verði í notkun á garðyrkjustöðvum og fyrirtækið dregið lappirnar við að útvega nýjan tank en krefji þó um leigu á tanki.

Bændur hafi skoðað þann möguleika að fjárfesta sjálfir í tanki en forsvarsmenn Linde Gas þá sett þeim stólinn fyrir dyrnar með því að skerða þjónustu við þá og hækka verð.

Refskák Höllu

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis, tók þá ákvörðun að hætta viðskiptum við Linde Gas.

„Í fyrsta lagi voru úreltir tankar á báðum garðyrkjustöðvunum hjá mér þegar ég tók við og leiga hafði verið greidd af þeim mánaðarlega svo líklega er ansi langt síðan þeir hafa verið greiddir upp að fullu. Með réttu eftirliti og viðhaldi hefði ég haldið að þeim báðum hefði átt að vera skipt út einhverjum árum áður. Ég varð mjög ósátt við þau kjör sem mér voru boðin til að leigja nýja tanka því við áttuðum okkur á að það tæki bara nokkur ár að greiða upp tanka á láni ef við myndum kaupa þá. Við fórum því í þá vegferð að kaupa sjálf tanka erlendis frá, sem varð til þess að Linde Gas, eini aðilinn á landinu sem selur koltvísýring, hótaði því að þau myndu ekki afgreiða okkur nema á hærra verði, því viðskiptakjörin byggðu á að við værum að leigja tanka af þeim.“

Þau rufu því viðskiptasambandið við Linde Gas og frá síðustu áramótum voru garðyrkjustöðvar Sólskins koltvísýringslausar um nokkurra mánaða skeið sem leiddi til minni framleiðslu en ella. Í vor bárust Höllu svo leigutankar frá erlendu fyrirtæki sem leigir Sólskins grænmeti einnig þriðja tankinn sem þau flytja inn koltvísýring í til reglulegrar áfyllingar á tankana.

Undirbúningsferlið, grunnkostnaður og uppsetning nýrra tanka voru flókin og kostnaðarsöm að sögn Höllu, en í dag þurfi hún ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki þann koltvísýring sem framleiðslan krefst.

„Ef fleiri bændur væru líka með okkur í liði þá væri hægt að gera þetta með enn hagkvæmari hætti. En ég trúi því vel að aðrir hafi verið smeykir hvort þetta myndi ganga upp hjá okkur eða ekki og held að enginn vilji taka áhættuna að vera í sömu stöðu og sama uppskerutapi og í vetur þegar við vorum koltvísýringslaus.

Draumurinn er auðvitað að geta fengið koltvísýringinn hér heima. Við erum líka í þeirri stöðu þá núna að geta keypt af hverjum sem er þegar tankarnir eru ekki skuldbundnir neinum aðila. Ég tel nokkuð öruggt að það muni verða breytingar á framboðinu á næstu árum og þá mun skipta miklu að hafa frjálsar hendur um hvaðan maður getur keypt áfyllingar,“ segir Halla.

Breytingar með örum tækniframförum

Örar tækniframfarir gætu gjörbreytt umhverfi og aðstöðu garðyrkjubænda á allra næstu árum. Axel Sæland bendir á að stórfyrirtækjum í iðnaði verði gert skylt að fanga þann koltvísýring sem þau losi og munu þurfa að finna honum farveg.

„Vonandi munu stór iðnaðarfyrirtæki hér á Íslandi sjá einhvern hag í að hreinsa koltvísýringinn á þann hátt að hann megi nota í gróðurhúsin. Það væri náttúrlega biluð auglýsing fyrir eitthvert álverið að geta sagt að það taki koltvísýring og setji hann í matvælaframleiðslu.“

Einmitt vegna þessa ætti bændum að vera í sjálfsvald sett hvaðan þeir fá koltvísýring í framtíðinni, með þeim fyrirvara að hann sé vottaður og hafi öll tilskilin leyfi fyrir matvælaframleiðslu.

„Koltvísýringur er allt í kringum okkur og menn eru jafnvel að binda vonir við að geta keypt búnað sem settur verði á gróðurhúsin sem beinlínis hreinsar koltvísýring úr andrúmsloftinu og dælir inn í gróðurhúsin. Það er verið að þróa slíkan búnað, þetta er allt bara spurning um kostnað,“ segir Axel

Ríkar skyldur fyrirtækja með markaðsráðandi stöðu

Eftirspurn eftir koltvísýringi hefur aukist jafnt og þétt hér á landi en fyrir utan garðyrkjuframleiðslu er hún meðal annars notuð í fiskeldi og þörungavinnslu, drykkjarframleiðslu og matvælapökkun. Stærstu einstöku kaupendur þess hér á landi eru gosdrykkjaframleiðendur og fiskeldisfyrirtæki. Þá eru kjötvinnslur einnig viðskiptavinir Linde Gas.

„Við erum að nota kolsýru og köfnunarefni til pökkunar á kjúklingi. Það sama má segja um flestar ef ekki allar kjötvinnslur landsins,“ segir Guðmundur Svavarsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs hf.

„Mér sýnist að frá því í árslok 2022 hafi verð á kolsýru hækkað um þrjátíu prósent. Köfnunarefni eitthvað minna. Ég hef í gegnum árin þurft að eiga mikil samskipti við Linde Gas og forvera þess, ÍSAGA. Á sínum tíma kom nýtt fyrirtæki hér inn á markaðinn, Strandmöllen ehf., sem bauð umtalsvert lægra verð. Þá skyndilega hafði ÍSAGA samband að fyrra bragði og var tilbúið að veita tugprósenta afslætti. Strandmöllen varð ekki langlíft.“

Árið 2013 birti Samkeppniseftirlitið ákvörðum vegna samruna ÍSAGA ehf., nú Linde Gas, og félagsins Strandmöllen ehf. sem starfaði á sama markaði á árunum 2009–2012. Þá var það mat Samkeppniseftirlitsins að með samruna fyrirtækjanna myndaðist einokunarstaða á þeim markaði en taldi þá ekki unnt að grípa til íhlutunar í samrunann. Hins vegar lagði það upplýsingaskyldu á ÍSAGA í tvö ár, þar sem fyrirtækinu var gert að greina frá verðbreytingum og breytingum á viðskiptaskilmálum og samningum. Þeirri upplýsingaskyldu lauk í febrúar árið 2015.

„Samkeppniseftirlitið hefur á fyrri tíð fjallað um og haft áhyggjur af samþjöppun á markaði fyrir innflutning, framleiðslu, sölu, leigu og dreifingu á gashylkjum og gasi. Hafa fyrri athuganir gefið til kynna að Linde Gas eða forverar þeirra hafi verið í markaðsráðandi stöðu. Hins vegar hafa þessir markaðir ekki komið til athugunar nýlega,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Á fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu hvíli ríkar skyldur samkvæmt samkeppnislögum, m.a. gagnvart viðskiptavinum. „Þannig getur það verið brot á banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu að setja ósanngjarna viðskiptaskilmála, setja takmarkanir á framleiðslu eða mismuna viðskiptaaðilum. Þessar skyldur eru ekki síst ríkar ef um einokunarstöðu er að ræða,“ segir Páll Gunnar

Hins vegar áréttar hann að Samkeppniseftirlitið hafi ekki tekið þau álitaefni til formlegrar rannsóknar og því sé ekki hægt að slá neinu föstu um niðurstöður slíkrar athugunar á Linde Gas. „Telji bændur að brotið hafi verið á sér stendur þeim til boða að hafa samband við Samkeppniseftirlitið.“

Skylt efni: Garðyrkja

Óeðlileg einokun á koltvísýringsmarkaði
Fréttaskýring 16. ágúst 2024

Óeðlileg einokun á koltvísýringsmarkaði

Skortur á koltvísýringi og óöryggi við afhendingu hans hefur hamlandi áhrif á yl...

Orsakir kals og möguleg viðbrögð
Fréttaskýring 5. júlí 2024

Orsakir kals og möguleg viðbrögð

Talsverðar kalskemmdir eru á Norðurlandi í ár og virðist tjónið vera útbreiddast...

Vanefndir stjórnvalda
Fréttaskýring 21. júní 2024

Vanefndir stjórnvalda

Nýlega bárust fréttir af nípuræktun í Þurranesi í Dölum og á síðasta ári var sag...

Ísland eftirbátur í stuðningi við nýliðun og fjárfestingu
Fréttaskýring 7. júní 2024

Ísland eftirbátur í stuðningi við nýliðun og fjárfestingu

Ísland stendur öðrum löndum að baki þegar kemur að stuðningi við nýliða í landbú...

Rýnt í endurskinshæfni skóga
Fréttaskýring 24. maí 2024

Rýnt í endurskinshæfni skóga

Komið hefur fram í vísindagreinum að breyting á endurvarpi sólargeislunar gæti m...

Upprunamerki matvæla skipta máli
Fréttaskýring 7. maí 2024

Upprunamerki matvæla skipta máli

Þegar kemur að því að versla matvæli horfa neytendur mikið til upprunalands fram...

Heimild kjötafurðastöðva til sameiningar og samstarfs
Fréttaskýring 18. apríl 2024

Heimild kjötafurðastöðva til sameiningar og samstarfs

Alþingi samþykkti 21. mars sl. breytingu á búvörulögum sem felur í sér undanþágu...

Mikilvægasta rými jarðar
Fréttaskýring 29. mars 2024

Mikilvægasta rými jarðar

Stærsta innlögn nýrra fræsafna í Alþjóðlegu fræhvelfinguna á Svalbarða átti sér ...