Genabreytt svín til pylsugerðar
Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin (FDA) hefur veitt Washington State University leyfi til að nota genabreytt svín (e. gene-edited pigs) til pylsugerðar og manneldis, en það er í fyrsta sinn sem slíkt leyfi er veitt í Bandaríkjunum.
Leyfið fékkst fyrir fimm slík svín og var tilgangurinn að sýna fram á að matur úr genabreyttum dýrum sé öruggur til neyslu og það sé möguleiki fyrir háskólastofnun að fá slíkt leyfi.
Frá þessum tíðindum var greint á vef háskólans nú í byrjun maí. Þar sagði að svínin væru genabreytt á þann hátt að vísindamenn gætu notað þau til að eignast afkvæmi með eiginleika frá öðrum gelti. Tæknin breytir göltum þannig að þeir eru gerðir ófrjóir. Síðan er stofnfrumum úr öðrum gelti komið fyrir í þeim genabreyttu sem svo framleiða sáðfrumur með æskilegum eiginleikum til að skila til næstu kynslóðar.
Kjötgæði og heilbrigði
Haft er eftir Jon Oatley, sem er prófessor í sameindalíffræði við háskólann og stýrir tilraunum með genabreytingarnar við dýralæknis- fræðideildina, að almenningur hafi gjarnan ranghugmyndir um slíkar genabreytingar. Hann vonast til að þeirra verkefni geti haft sitt að segja í að leiðrétta þær og hjálpa til við að upplýsa um þessa tæknimöguleika. Hann segir að upphaflega markmið verkefnisins væri að bæta þær aðferðir sem við höfum til að fæða mannfólk. Þessi tækni búi yfir möguleikum til framtíðar, að hægt verði að ala búfé með meiri kjötgæði og bæta heilbrigði og seiglu í ljósi aðsteðjandi breytinga á loftslagi og umhverfi. Mikil þörf sé til dæmis fyrir meiri og hagkvæmari kjötframleiðslu í þróunarríkjunum.
Genabreyttu svínsskrokkarnir voru sendir í kjötvinnslu háskólans þar sem þeim var breytt í pylsur og voru svínin tveggja ára við slátrun. Pylsurnar, sem sagðar eru í þýskum stíl, verða seldar í veitingaþjónustu og verður ágóðinn af sölunni settur í ferðasjóð háskólanema sem keppa fyrir hönd skólans í kjötmati.