Laugardalshólar
Ábúendur á Laugardalshólum flytja þangað árið 1998 og koma inn í búskapinn.
Þá voru þau bara með sauðfé og hross. Haustið 2016 var byrjað á endurbótum á fjósi og því breytt í kálfafjós og fyrstu kálfarnir settir þar inn vorið 2017.
Þau eru að standsetja verslun í bílskúrnum hjá sér og munu þar selja vörur beint frá býli, vonandi nú í október.
Sama ætt hefur búið á Laugardalshólum síðan um árið 1710.
Býli: Bærinn heitir Laugardalshólar.
Staðsett í sveit: Í Laugardal í Bláskógabyggð.
Ábúendur: Ábúendur eru Jóhann Gunnar Friðgeirsson og Heiða Björg Hreinsdóttir. Einnig býr þar Friðgeir Smári Stefánsson sem er faðir Jóhanns.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum 5 börn, 4 dætur og son sem býr hér ásamt unnustu og 2 börnum þeirra. Tvær dætur eru ennþá heima og eldri tvær stunda nám í HÍ og búa í Mosfellsbæ.
Stærð jarðar? Jörðin er um 1.200 ha.
Gerð bús? Nautaeldi, sauðfjárbúskapur.
Fjöldi búfjár og tegundir? 105 nautgripir, 100 vetrarfóðraðar kindur og 25 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Gegningar byrja klukkan sex á morgnana og svo klukkan átta fer Jóhann að vinna í múrverki, hann er múrarameistari með eigið fyrirtæki.
Svo eru gegningar aftur seinnipartinn. Friðgeir og Heiða vinna ýmis störf sem til falla yfir daginn, mismunandi eftir árstíðum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Flest verk skemmtileg en upp úr standa sauðburður, smalamennskur og fjárrag á haustin.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Sjáum fyrir okkur að við verðum búin að bæta í nautgriparæktina en svipaður fjöldi verður vonandi af sauðfé.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þakklát því fólki sem gefur sér tíma að vinna að þeim málum.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vel, sjáum fullt af tækifærum fyrir íslenskan landbúnað í framtíðinni.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Lambakjötið og mjólkurvörurnar.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, egg, ostur, skyr og rjómi.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjötið og grillaðir hamborgarar.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er líklega þegar kom að þeim tímapunkti að setja fyrstu kálfana okkar í nýuppgert fjósið.
Friðgeir Smári Stefánsson.