Syðstu-Fossar
Á Syðstu-Fossum í Borgarfirði búa þau Unnsteinn og Harpa ásamt Snorra, föður Unnsteins, sem er fyrrverandi bóndi á bænum, og Magnúsi, syni þeirra.
Býli: Syðstu-Fossar.
Staðsett í sveit: Borgarfjörður.
Ábúendur: Unnsteinn Snorri Snorrason og Harpa Sigríður Magnúsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum tvo syni, Ísak Rey (f. 2000) og Magnús Snorra (f. 2015). Ísak er fluttur að heiman, býr á Fáskrúðsfirði.
Á bænum býr einnig Snorri Hjálmarsson, sem er pabbi Unnsteins og fyrrverandi bóndi á bænum. Í heimilisfesti eru einnig tveir gagnslausir kettir, Doppa og Aska, sem eru í eigu húsfreyjunnar.
Stærð jarðar: Jörðin er um 170 ha, þar af eru um 30 ha tún.
Gerð bús: Sauðfé og hross.
Fjöldi búfjár: 120 vetrarfóðraðar ær og 25 hross
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum: Dagarnir eru misjafnir, eftir árstíðum, eins og gengur í búskapnum. Harpa og Unnsteinn vinna bæði utan bús. Unnsteinn sér um gegningar að morgni áður en hann fer til vinnu. Harpa sér um að koma Magnúsi í skóla. Síðan reyna allir að hjálpast að seinni part dags eftir getu og áhugasviði.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegustu verkefnin eru á vorin. Það fylgja því alltaf einhverjir töfrar að taka á móti vorinu með öllum þeim verkefnum sem því fylgja.
Okkur þykja engin bústörf sérstaklega leiðinleg, nema þá helst bókhald og skýrsluskil.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár: Það eru ekki fyrirhugaðar neinar breytingar á búskapnum næstu árin.
Við erum opin fyrir tækifærum sem geta skapað meiri tekjur af búskapnum, þannig að ekki þurfi að sækja vinnu utan bús í eins miklum mæli.
Hvað er alltaf til í ísskápnum: Það er þetta hefðbundna, íslenskar landbúnaðarafurðir, svo sem mjólk, smjör, ostar og skinka. Síðan er gjarnan til sviðasulta og kalt slátur.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu: Þegar mikið liggur við er eldað lambakjöt. Steikt bleikja er líka ofarlega á vinsældalistanum.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin: Við gefum Magnúsi orðið: „Mér fannst skemmtilegt þegar kindin mín bar, 3 lömbum, úti á túni eitt vorið. Við þurftum að sækja hana á bílnum. Pabbi mátti ekki vera að því að setja hana inn á réttum tíma því hann var að halda fyrirlestur í tölvunni um vinnuhagræðingu á sauðburði. Svo setti pabbi eitt lambið á um haustið, en ég komst að því í vor og núna á ég 6 kindur, átti nefnilega bara 5.“