Tannstaðabakki
Guðrún Eik og Óskar tóku við búinu 1. janúar 2014 af foreldrum Guðrúnar, Ólöfu og Skúla, en hún er 6. ættliðurinn sem býr á Tannstaðabakka. Þar hefur sama ættin búið frá því milli 1820–1830.
Foreldrar Guðrúnar búa enn í sínu húsi og reka 2 kjúklingaeldishús, en Guðrún og Óskar byggðu nýtt íbúðarhús á jörðinni. Það má segja að þau hafi ekki setið auðum höndum en á þessum tæpu þremur árum stækkuðu þau stíupláss í nautaeldishúsi um þriðjung, rifu út úr 2/3 af fjárhúsunum og innréttuðu fyrir nautgripauppeldi. Að svo búnu byggðu þau íbúðarhús og eignuðust tvíbura.
Býli: Tannstaðabakki.
Staðsett í sveit: Hrútafirði, Húnaþingi vestra.
Ábúendur: Guðrún Eik Skúladóttir og Óskar Már Jónsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Tvíburadæturnar Bjarnveig Anna og Þórey Sunna, 1 árs, hvolpurinn Táta og kettirnir Kólumbus og Arinn Eldur. Foreldrar Guðrúnar, Ólöf og Skúli, búa einnig á jörðinni.
Stærð jarðar? 300 ha.
Gerð bús? Aðallega kúabúskapur, nokkrar kindur og hænur.
Fjöldi búfjár og tegundir? Erum með 38 árskýr, nautaeldi – alls um 150 nautgripir. Þá erum við með 72 kindur, sjö hænur, hundu og tvo ketti.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Byrjað og endað á mjöltum og ýmis verk þar á milli, eða það sem fellur til á hverjum árstíma.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Guðrúnu finnst skemmtilegast að mjólka og stússast í kringum kindurnar og ungviðið hverju sinni, en leiðinlegast í bókhaldinu. Óskari finnst skemmtilegast í öllu sem tengist jarðrækt, en leiðinlegast í öllu sem viðkemur kindum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Við stefnum á að vera búin að byggja nýtt fjós og fjölga kúnum upp í 60. Nóg af gripum í uppeldi og nóg að gera.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Félagsmál bænda eru gríðarlega mikilvæg fyrir bændastéttina. Þar er oft unnið óeigingjarnt og á tíðum vanþakklátt starf í okkar þágu. Því er regluleg endurnýjun í öllum félögum af hinu góða og í raun nauðsynleg.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Við erum bjartsýn og höfum óbilandi trú á íslenskum landbúnaði, svo við trúum ekki öðru en að íslenskum landbúnaði muni vegna vel í framtíðinni.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Helstu tækifærin eru í íslenska lambakjötinu og íslenska skyrinu.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur og smjör.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambalæri og nautalund.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Fyrsta vorið okkar fór lóðning í tölvunni í mjaltabásnum. Þetta uppgötvaðist þegar kvöldmjaltir voru að fara af stað og kl. 21 um kvöldið brunuðum við hjónin af stað á Selfoss, en þar var staðsettur eini varahluturinn sem til var í landinu. Við vorum komin til baka um 4-leytið um nóttina, og kýrnar orðnar ansi reiðar yfir því hve kvöldmjöltunum hafði seinkað. Við ræstum út rafvirkjann og kl. 7 um morguninn kláruðum við mjaltirnar, á sama tíma og við værum að byrja morgunmjaltirnar venjulega.