Ætlar að dansa í gegnum lífið
Þórey er 10 ára hnáta sem finnst gott að borða tacoskeljar, gaman að yrkja ljóð í skólanum og ætlar að dansa í gegnum lífið.
Nafn: Þórey Ingvarsdóttir.
Aldur: Ég varð 10 ára 14. nóvember.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Árnesi 1.
Skóli: Finnbogastaðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Skrifa ljóð.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundarnir mínir, Korka og Guðni.
Uppáhaldsmatur: Tacoskeljar.
Uppáhaldshljómsveit: One Direction.
Uppáhaldskvikmynd: Mamma Mia.
Fyrsta minning þín? Spánarferðin með fjölskyldunni.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Nei.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að dansa.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að gera magaskelli í sundi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Vera veik heima.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já ég fór t.d. í Vindáshlíð og svo var ég hérna heima að leika við vini mína og gestina sem komu í heimsókn.