Hefur haldið á skallaerni og kaktusi
Heiðrún Anna er í Lundaskóla og elskar að borða góðan ís.
Nafn: Heiðrún Anna Kristinsdóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Akureyri.
Skóli: 3. bekk í Lundarskóla á Akureyri.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Sund og myndlist.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hýena og fuglar.
Uppáhaldsmatur: Burrito á Serranó og mexíkókjúklingasúpa.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Raya og síðasti drekinn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég söng kalli litli könguló fyrir ömmu og afa.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og handbolta og er í myndlistarskóla.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Kokkur og dýrafræðingur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég hélt á skallaerni á Tenerife og þegar ég hélt á kaktus með berum höndum (það geri ég ekki aftur).
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt um páskana? Hafði gaman með fjölskyldunni, spilaði og borðaði ís – ég elska ís!
Næst » Aron Gabríel Samúelsson, frændi minn.