Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Jaguar E-Pace.
Jaguar E-Pace.
Á faglegum nótum 8. maí 2018

150 hestafla jepplingur frá Jaguar

Laugardaginn 17. mars síðastliðinn opnaði BL nýjan sýningarsal fyrir Landrover og Jaguar að Hesthálsi. Mikill mannfjöldi var þennan fyrsta dag opnunarinnar á þessum glæsilega sýningarsal að skoða þessa eðalbíla. 
 
Stuttu eftir opnunina fékk ég að prófa „litla bróður“ Jaguar F-Pace sem nefnist Jaguar E-Pace og er örlítið minni jepplingur en „stóri bróðir“ sem ég valdi sem jeppling ársins hér í blaðinu á síðasta ári.
 
Hljóðlátasti jepplingur sem ég hef prófað til þessa
 
Í prufuakstrinum, sem var um 125 km, prófaði ég bílinn á möl, malbiki og á hörðum steyptum vegi (í Kollafirði) sem gefur yfirleitt mikið veghljóð. Með appi í símanum mínum mæli ég hvað mikill hávaði er inni í bílnum á þessum vegum og eins og gefur að skilja hafa rafmagnsbílar hingað til verið með lægstu decibel mælingarnar hingað til. Jaguar E-Pace virðist samkvæmt mælingunum vera með nánast sömu mælingu á þessum vegköflum og í rafmagnsbílum (57db. á malbiki, 60db. á möl og 66db. á steypta kaflanum í Kollafirði). 
 
Þegar ég ók niður Kjósar­skarðsveginn á holóttum malarkafl­anum kom það mér á óvart hversu vel bíllinn tók holurnar á malarveginum þrátt fyrir að dekkin undir bílnum væru með frekar lágan prófíl. Á mölinni heyrðist nánast ekki neitt malarvegahljóð og fjöðrunin svo góð að ég var farin að miða á verstu holurnar til að njóta fjöðrunarinnar. Eitthvað sem ég geri sjaldan á malarvegum.
 
Lét mig vita af hraðamyndavélinni í vegkantinum
 
Á hlykkjóttum malbikskafla prófaði ég að taka vel á bílnum (þ.e. keyra of hratt) og hagaði bíllinn sér eins og sportbíll í beygjunum. Það eina sem maður þarf að varast er að keyra ekki of hratt á bílnum við flestar aðstæður því maður finnur ekkert fyrir hraðanum. Margoft stóð ég sjálfan mig að því að vera kominn með hraðamælisnálina í þriggja stafa tölu í framrúðunni þar sem speglast hraðinn sem ekið er á og einnig er þar speglun frá akreinalesaranum. 
 
Í bílnum er mikið af ýmsum þægindabúnaði s.s. hiti í stýri, akreinalesari, en það sem var nýtt í þessum bíl vakti svo mikla furðu hjá mér að ég tvíprófaði það. Þegar ég ók fram hjá hraðamyndavélinni á Kjalarnesi flautaði mælaborðið á mig og grunaði mig að þetta væri hraðamyndavélin og til að fá það staðfest var ekkert annað en að snúa við og taka annað rennsli í myndavélina. Það stóð heima, mælaborðið gaf mér tvö flaut aftur. Þetta er búnaður sem ég hef ekki orðið var við í bílum áður.
 
Eyðslugrannur miðað við kraft
 
Alls ók ég bílnum 124,9 km á meðalhraðanum 51 km og var uppgefin eyðsla mín 7,2 lítrar á hundraðið. Það finnst mér lítið miðað við að ég var aldrei að reyna neitt að spara eldsneytið og botngaf bílnum nokkrum sinnum. Stillingar til aksturs á bílnum eru fjórar, en ég prófaði þrjár, þ.e. snjó, sparakstur og sport. Vissulega fannst mér skemmtilegast að keyra bílinn í sport stillingunni, en þá var snerpan svo mikil að bíllinn virkaði eins og að hestöflin væru miklu fleiri en 150. Lítið gat ég fundið að bílnum, en plássið fyrir höndina þegar maður spennir öryggisbeltið er full lítið og þröngt: Hitt var að í bílnum er ekki fullbúið varadekk heldur bara það sem ég kalla aumingi. Hefði viljað að í svona góðum akstursbíl væri fullbúið varadekk, en auminginn verður að duga. Það er þó skárra en ekkert varadekk sem er of algengt í bílum í dag.
 
Margir góðir punktar og lítið hægt að lasta
 
Svo mikið er af góðum hlutum í þessum bíl sem vert væri að nefna, en fáir ókostir. Fyrst vil ég nefna skjáinn sem getur sýnt ótal myndir og möguleikarnir eru margir. Þessi skjár er sennilega stærsti og besti sem ég hef séð í bíl.
 
Farangursgeymslan er í lagi, mætti þó alveg vera stærri. Öll sæti eru góð og útsýni úr framsætum gott. Fyrir fullorðna er lakara útsýni úr aftursætum þar sem afturgluggar eru frekar litlir.
 
Eitt það flottasta við bílinn sá ég fyrir tilviljun þegar ég gekk að bílnum í myrkri og opnaði með fjarstýringunni á lyklinum. Ljós sem lýsti niður á götuna úr speglunum sýna þar sem fóturinn er þegar stigið er inn í bílinn. Þetta er ætlað til þess að maður sjái hvort pollur eða bleyta er þar sem fótur  er áður en stigið er inn í bílinn. Í skuggamynd á jörðinni má sjá stóran Jaguar og annan lítinn á eftir honum sem á að sýna að þetta er litli Jaguar E-Pace. Mér er sagt að á F-Pace sjáist ekki litli Jaguar-unginn í þessu sama ljósi.
 
Gæti verið erfitt að toppa þennan bíl
 
Verð á Jaguar E-Pace er frá 5.990.000 sá ódýrasti og upp í 9.500.000 sá dýrasti. Verðið fer algjörlega eftir því hvað mikið af aukabúnaði er í bílnum. 
 
Miðað við þennan litla prufuakstur verður erfitt að toppa þennan jeppling sem er einhver albesti jepplingur sem ég hef prófað. Hefði ég getað haft þennan texta mun lengri því margt er ósagt um bílinn. Fyrir áhugasama er þá bara að fara inn á vefsíðuna www.bl.is eða að hafa samband við sölumenn Jaguar hjá BL. 
 
Helstu mál og upplýsingar:
Lengd 4.395 mm
Hæð 1.684 mm
Breidd 1.984  mm
 

 

8 myndir:

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...