Merkja skal alla kálfa
Höfundur: Matvælastofnun / jbl
Matvælastofnun vekur athygli á breytingarreglugerð nr. 748/2016 á reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár sem tók gildi 19. ágúst sl.
Í reglugerðinni er gerð breyting á 6. gr. sem fjallar um merkingar nautgripa. Hér eftir er tekin upp skylda að merkja alla kálfa, einnig þá sem slátrað er innan 20 daga, með forprentuðu plötumerki í bæðu eyru.
Ekki er lengur leyfilegt að auðkenna þá með númer móður, sem var gefið upp við slátrun. Kálfurinn þarf að vera merktur með viðurkenndu plötumerki áður en hann er fluttur frá búinu í sláturhús.
Í öðru lagi eru gerðar breytingar á merkingarreglugerðinni til að styrkja framkvæmd á einstaklingsmerkingum búfjár og þá sérstaklega hvað varðar örmerkingu hrossa. Þannig er sett inn ákvæði um að ömerki skulu viðurkennd af Matvælastofnun og að söluaðilar megi aðeins selja örmerki í hross til aðila sem hafi leyfi til örmerkinga hrossa.
Þá skulu allir umráðamenn búfjár og söluaðilar viðurkenndra merkja fyrir búfé vera skráðir í MARK, sem er miðlægt tölvukerfi sem heldur utan um merkingar búfjár, en MARK fluttist yfir til Matvælastofnunar um síðustu áramót þegar stjórnsýsluverkefni voru flutt frá Bændasamtökum Íslands.
Að síðustu bætist við nýtt ákvæði um að í MARK skuli skrá pöntun og sölu einstaklingsmerkja til umráðamanna búfjár og viðurkenndra merkingarmanna og upplýsingar um einstalingsnúmer keyptra merkja.
Breytingin á reglugerðinni varðandi merkingu kálfa sem kemur til að kröfu ESA, eftirlitsstofnunar ESB, um að allir nautgripir verði að vera einstaklingsmerktir þegar þeir koma til slátrunar. Matvælastofnun er ljóst að breyting sem þessi þarfnast undirbúnings og mun taka tillit til þess við eftirlit. Bændur eru þó hvattir til að bregðast skjótt við og merkja sína kálfa samkvæmt reglugerðinni. Ef bændur eru óvissir um framkvæmdina eru þeir hvattir til að leita sér ráðgjafar m.a. hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.