Piparskott
Piparskott (Peperomia) er samheiti yfir fjölda skyldra tegunda sem eru fremur smágerðar, þéttvaxnar, fjölærar jurtir með sígrænt lauf. Tegundir þessar eru skyldar piparjurtinni en eru ekki notaðar til matar. Náttúruleg heimkynni þeirra flestra eru Mið- og Suður- Ameríka en nokkrar tegundir vaxa villtar í Afríku.
Þessar tegundir hafa reynst lifa góðu lífi sem pottablóm og hafa þann skemmtilega eiginleika að sýna mikinn breytileika í blaðlögun, blaðlit og áferð, auk þess sem blómin geta verið til mikillar prýði.
Fjölbreytt útlit
Margar tegundir fást í blómaverslunum og það getur verið smekklegt að raða þeim nokkrum saman á borð eða í glugga, ýmist saman í stóran pott eða hafa sína plöntu í hverjum potti. Hengipottar geta líka hentað þeim vel. Sumar tegundir eins og smaragðsskott bera rauðleitt, gárótt og nánast hringlaga lauf og langa, örmjóa blómstilka og fara vel með t.d. silfurskotti. Grængljáandi lauf smaragðsskottsins stendur á alllöngum stilkum, er því aðeins hávaxnari og myndar gosbrunnslaga brúsk. Rákótt, gljáandi og silfurdregin laufblöð silfurskottsins eru mjög falleg. Annars er best að fara í blómaverslun með góðu tegundaúrvali og finna sín eigin uppáhaldsyrki af þessum fjölbreytta hópi skrautplantna.+
Piparskott þurfa ekki að vaxa í stórum potti til að ná góðum þrifum.
Takmörkuð krafa um daglega umhirðu
Lauf flestra þessara tegunda eru fremur þykk og því eru margar þeirra hálfgerðir þykkblöðungar. Reglan er því sú að því þykkara sem laufið er, þeim mun sjaldnar þarf að vökva plöntuna. Moldin má þorna nokkuð vel milli vökvana og áburðargjöf er stillt mjög í hóf. Gefið helming uppgefins magns af blómaáburði í aðra hverja vökvun frá vori og fram eftir sumri. Þegar haustar drögum við svo úr vökvun og höldum moldinni aðeins lítillega rakri þar til dag er farið að lengja á ný.
Umpottun og formklipping
Umræddar tegundir þurfa ekki að vaxa í mjög stórum potti til að ná góðum þrifum. Algengast er að umpotta ekki nema á 2–3 ára fresti. Meiri líkur virðast vera á kröftugri blómmyndun á plöntum sem vaxa í fremur smáum pottum, 13–14 cm víðum. Notið venjulega pottamold við umpottun. Lögun plantnanna getur verið mismunandi eftir tegundum og er rétt að leyfa henni að njóta sín sem best. Ef greinar verða óþarflega langar eða plantan verður skökk í pottinum er auðvelt að leiðrétta það með því að fjarlægja óþarfan greinavöxt. Hægt er að klippa plöntuna vel niður ef hún þykir vera orðin of stór.
Í beinu sólarljósi geta laufin orðið fölleit og fá jafnvel blaðskemmdir. Almennt hentar peperomia- tegundum að standa í hálfskugga. Græðlingar róta sig greiðlega og fræfjölgun er líka auðveld. Meira að segja er hægt að setja afskorin lauf í raka mold og búast við að þau skjóti rótum, en sá eiginleiki er ekki algengur meðal plantna. Eldri plöntum má líka skipta í nokkra hluta.
Lauf flestra piparskotta eru þykk og því eru margar þeirra hálfgerðir þykkblöðungar.
Hóflegar hita- og rakakröfur
Venjulegur stofuhiti hentar plöntunum vel, en huga mætti að því að úða yfir þær reglulega því loftraki er venjulega í lægra lagi í híbýlum okkar. Til að njóta blaðfegurðarinnar sem best er ágætt að skola plönturnar öðru hvoru, t.d. í sturtunni.
Ingólfur Guðnason brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu LbhÍ Reykjum, Ölfusi.