Hrúturinn Svarti-Smári frá Vatni er héraðsmeistari
Út af dálitlu sem hefur angrað heiminn síðustu mánuði var ekki hægt að halda haustfagnað Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu um veturnætur í október sl. FSD stóð fyrst fyrir sameiginlegri héraðssýningu lambhrúta haustið 2005 og hefði hrútasýningin síðasta haust því orðið sú 16. ef samkomur hefðu verið leyfðar.